Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Qupperneq 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Qupperneq 18
VÍKINGUR skiptin erfiðari. Ég er á því að frjálst fiskverð hafi verið mistök á sínum tíma. Margir af forystumönnum sjó- manna voru bjartsýnir um að þetta yrði til þess að innan skamms færi allur fiskur um markaði. Það voru aðr- ir sem vöruðu við að svo færi ekki, sem er eðlilegt, þar sem það mörg skip eru í eigu vinnslunnar. Það hefur sýnt sig og segir sig sjálft þegar þetta er orðið þannig að einstaka áhafnir eiga að semja um fiskverðið við sína út- gerðarmenn — hvað eigi að greiða fyrir aflann. Þetta gengur ekki og hefur kostað átök víða og óánægja er mikil einmitt þess vegna,“ sagði Hilmar Rósmundsson. Jón Karlsson, formaður Verkalýðsfélagsins Fram á Sauðárkróki: Þessi þáttur hefur versnað „Ég hef skynjað það síðustu ár að það eru að ganga yfir kynslóðaskipti hjá stjórnendum sjávarútvegsfyrir- tækja. Ég vil ekki setja út á þá sem áður voru, en þeir sem nú stjórna nálgast hlutina með annarri sýn, hafa önnur viðhorf í rekstrinum. Mér sýnist þeir horfa meira fram í tímann og nota nútfmalegri stjórnunarhætti,“ sagði Jón Karlsson á Sauðárkróki. „Það verður að segjast eins og er að þessir menn eru að laga fyrirtækin að kvótakerfinu, þeir eru að skapa meiri fjölbreytni. Samskipti milli okkar og þeirra hafa ekki farið batnandi hvað snertir ein- staka starfsmenn. Það er frekar á hinn veginn. Fjarlægðin milli stjórnenda og sjómanna er meiri en hún var. Það kemur líka til af því að fyrirtækin eru orðin það stór, það er ekki hægt að segja að það sé neinn útgerðarmaður. Æðsti stjórnandi er langt frá fólkinu á gólfinu og manninum á sjónum, því miður. Það er orðinn siður víða að kenna kvótakerfinu um allt illt. Ég bendi á það sem er að gerast í sjávarútvegi á Vestfjörðum. Þar virðast menn ekki hafa reynt í sama mæli að laga sig að ríkjandi aðstæðum, heldur sett haus- inn undir sig og bölvað og ragnað. Hér hafa menn aukið fjölbreytni og farið eftir þeim leiðum sem færar eru og hafa náð árangri. Ég held, þrátt fyrir allt, að það verði alltaf að huga að mannlega þættinum í samskiptum stjórnenda fyrirtækja og annarra starfsmanna. Sá sem tekur stærstu ákvarðanirnar verður að vera í tengslum við starfsfólkið. I heild hef- ur þessi þáttur versnað og það eru að koma upp deilumál og einnig mál sem koma ekki upp á yfirborðið vegna þess að menn þora ekki að beita sér vegna ótta sem skapast jafnvel af atvinnuástandi. Það þarf heldur ekki að vera eingöngu stjórnendunum að kenna ef fjarlægðin er mikil, það getur líka verið að fólkið nálgist mennina ekki af einhverjum ástæðum,“ sagði Jón Karlsson. Elías Björnsson, formaður Sjómanna- félagsins Jötuns í Vestmannaeyjum: Hafa þann sið að setja hnefann í borðið „Það er mjög misjafnt eftir útgerð- armönnum hvernig samskiptin eru. Það eru yngri menn að taka við. Það eru til reyndir stjórnendur hér sem hafa þann sið að setja hnefann í borðið en hér er ungur stjórnandi sem er allt annað og betra að eiga samskipti við. Kynslóðaskiptin hér eru af hinu góða. Aður var mikið um útgerðarmenn sem gerðu út sinn bát, en þeim hefur fækkað verulega. Þeir sem eftir eru eru misjafnir, sumir eru harðir á sínu,“ sagði Elías Björnsson, formaður Sjó- mannafélagsins Jötuns í Vestmanna- eyjum. 18 Róbert Guðfinnsson, framkvæmdastjóri Þormóðs Ramma: Gengur út á miklu fleira en laun sjómanna „Þegar ég var stýrimaður á togara hér á Siglufirði voru þáverandi stjórn- endur í meiri fjarlægð frá sjómönnun- um en við erum. Þá var fyrirtækið í tómum vandræðum og framkvæmda- stjórarnir voru á endalausum flótta þess vegna,“ var svar Róberts Guð- finnssonar, framkvæmdastjóra Þor- nióðs ramma á Siglufirði, þegar hann var spurður um réttmæti þeirrar gagnrýni að núverandi útgerðarmenn séu fjær sjómönnum en þeir sem á undan voru. Róbert segir að stjórnunarhættir hafi vissulega breyst. „Gömlu gengis- fellingarráðin eru ekki til lengur. Menn verða að skila árangri í rekstri. Við verðum að standa á eigin fótum og menn hafa áttað sig á því. Áður var meira um óábyrga stjórnunarhætti, bæði hjá stjórnvöldum og stjórnend- um.“ Þegar Róbert er aftur spurður um samskipti við sjómenn segir hann meðal annars: „Það virðist allt snúast um laun sjómanna. Fjölmiðlar taka þátt í því. Nýlegt dæmi eru hásetalaun á Pétri Jónssyni RE, sem var að landa rækju fyrir 80 milljónir króna. Þá var fjölmiðlaumræðan um hversu hár hluturinn væri. Sjávarútvegur gengur út á miklu fleira en laun sjómanna. Ég hef meiri áhyggjur af landverkafólki, þar sem það er að verða æ erfiðara að halda uppi vinnu allt árið. Við vitum hvernig námuhestarnir voru í Bret- landi; sáu bara fram fyrir sig, þannig virka forystumenn sjómanna á mig þegar rætt er um launamál sjómanna.“ Nú hefur þitt fyrirtæki ekki fiskað eigin þorskkvóta í nokkuð langan tíma, er ekki stór hluti af tekjum fyrir- tækisins tilkominn vegna þess? „Við höfum engar tekjur af þeim veiðum.“ j
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.