Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Side 19
VÍKINGUR
í vinnslunni, er það ekki?
„Jú, við erum í viðskiptum við fjóra
netabáta á Reykjanesi. Þeir láta okkur
hafa allan þorsk undir fimm kílóum
og við leggjum til allan kvóta á móti.
Við borgum 48 krónur á kílóið.“
Það er ekki hátt verð.
„Ekki hátt? Það er ekki hægt að
borga meira ef þetta á að ganga. Ef
verðið væri hærra myndi borga sig
fyrir okkur að fiska þetta á eigin
skipum. Fyrir áhafnirnar á þessum
fjórum bátum er þetta ágætt, við
leggjum til kvóta fyrir meðfiskinn.
Meðalverðið hjá þeim verður ágætt, ef
við gerðum þetta ekki gætu þeir ekki
fiskað neitt í líkingu við það sem þeir
gera.“
Þá eruð þið ekki hetjur, heldur eru
þessir sjómenn þrælar kerfisins.
„Nei, þeim stendur ekkert annað til
boða,“ sagði Róbert Guðfinnsson.
Sighvatur Bjarnason,
f ramk væmdarstj ór i
Vinnslustöðvarinnar
h.f. í Vestmannaeyjum
Misjafnt eftir
mönnum
„Ég held að þetta hljóti nú að vera
misjafnt eftir mönnum. Á undanförn-
um tveimur til fjórurn árum þetta eru
yfirleitt menn lenda í því að taka við
fyrirtækjum, sem eru í mjög erfiðri
aðstöðu. Þeir hafa þurft að taka á hlu-
tum, taka erfiðar ákvarðanir en ég
held að þessi menn séu ekki með neitt
öðruvísi hjartarlag en áður var. Við
megum ekki gleyma því að við erum
búnir að búa hér við mjög erfíð skil-
yrði, mikill kvótasamdráttur, mikil
skuldasöfnun og háir vextir og menn
hafa þurft að taka á þessum málum
með mikilli festu, sem er grunnur sem
byggt er á til framtíðar."
En hafa stjórnendur fjarlægst starfs-
fólk meira en áður var?
„Að hluta til held ég að það sé rétt,
þó svo að það sé kanski ekki eftir okk-
ar vilja, við verjum miklum tíma í að
kljást við fortíðardrauganna. Eins er
það að við þurfum að standa í því að
teikna saman frá viku til viku og reyna
átta sig á því hvort maður eigi kvóta
og ef svo er ekki þá þarf að útvega
kvóta m.a. afi minn þurfti ekki að hafa
áhyggjur af slíku, hann sendi bara bát-
anna á sjó og þeir komu fullir eða
ekki. Ég held að fólk í sjávarútvegi
sem almennt með gott hjartarlag og sé
ekki með neinn kala eða fúlmennsku
út í hvort annað, þetta er ósköp jarð-
bundið fólk. En sem betur fer horfir
nú betur við en áður, staðan var erfið
fyrír sjómenn
Slysavarnaskóli sjómanna heldur eftirfarandi námskeið á næstunni
3. -4. apríl
6. -7. apríl
10. - 12. apríl
18. ■ ■19. apríl
20. ■ -21. apríl
25. ■ ■28. apríl
Upprifjunarnámskeið í eld- og sjóbjörgun
Eldvarnarnámskeið
Námskeið í slysahjálp og meðferð lyfjakistu
Æfingastjórnun fyrir skipstjórnarmenn
Upprifjunarnámskeið í eld- og sjóbjörgun
Almennt námskeið Hornafirði
Skráið ykkur tímanlega
á námskeiðin í símum:
562 4884 og 985 20028
Slysavarnaskóli sjómanna
19