Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Page 24
VÍKINGUR
á sér og láta hana óáreitta, skít, heið-
bjartan himin, að ösla mikinn fjöru-
gróður, formann kyssa háseta, bátinn
vera að sökkva, fagra öngla, grjót,
mjólk, kaffi með brauði o.s.frv.
Aftur á móti er afleitt að dreyma
kvenfólk, bæði fyrir sjóferðir og á sjó.
Þær vita á storma og vitlaust veður.
Berar konur eða konur sem daðra við
dreymandann eru alverstar, jafnvel
feigðarboðar. Þær hafa verið taldar
tákn Ægisdætra en fæstir vilja lenda í
faðmi þeirra. Séu draumkonurnar
löngu látnar eða sitji þær við stýri
skipsins er von á áföllum, jafnvel
andláti úr röðum áhafnar. Kven-
mannsnafnið Margrét í draumi er talið
slæmur fyrirboði fyrir sjómenn.
Varhugavert er að dreyma svartan
kött eða rottu áður en farið er til sjós.
Að dreyma hljóðfæraleik er fyrir
stormi. Dreymi menn að skip sé
rauðmálað ferst það með allri áhöfn.
Þá er fyrir óhöppum að dreyma að
skip manns brotni.
Þvottur
Ekki er talið gott að þvo fiskislor af
bátum fyrr en vertíðinni er lokið, þá
þvær maður burtu aflasældina. Af
sömu ástæðum eiga menn ekki að þvo
af sér slorið í róðri og sumir hafa fyrir
sið að þvo ekki kaffibollana sína.
Margir hafa trúað því að ákveðin
föt, t.d. sokkar, húfur, vettlingar, háls-
klútar o.s.frv., færi þeim fiskisæld og
séu til heilla. Sumir telja ólán að þvo
þessar llfkur, að minnsta kosti áður en
vertíðinni lýkur.
Norðlenskur sjómaður á sextugs-
aldri sagðist hafa átt sama sjóteppið
frá því hann hóf sjómennsku sextán
ára gamall. Ekki hefur það verið
þvegið í fjörutíu ár og alltaf sefur
hann undir því þegar hann er til sjós.
Teppið er orðið hálfgerður ræfill svo
hann tók sig til fyrir nokkrum árum og
saumaði utan um það sem eftir var af
því. Án teppisins fer hann ekki á sjó
og sagðist hætta sjómennsku ef teppið
glataðist.
Bannhelgi nafna
Lengi hefur sú trú verið fylgifiskur
þjóðtrúar að nöfn séu máttug og það
geti skipt sköpum að nefna eða nefna
ekki ákveðin fyrirbæri. Þessi hjátrú er
þekkt. Á sjó má t.d. ekki nefna nöfn
illhvela eins og búra, hrosshvelis,
hundhvelis, stökkuls og nauthvelis.
Til marks um það er þessi vísa:
Kllídijarl
SPARISJÓDSINS
Öryggi í stað áhættu
SPARISJÓÐURINN
SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA
■ ■■■■■
-þar sem þú hefur forgang.
24