Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Síða 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Síða 29
VÍKINGUR y Aflaheimildir - sameign þjóðarinnar? Osammála um áhrif álits Ríkisendurskoðunar Ólafur Arnfjörð Guðmundsson í sl. viku kvað Ríkisendurskoðun upp þann úrskurð að greiða bæri erfðafjárskatt af eign einstaklinga í aflaveiðiheimildum sem þeir fengju í arf. Þessi úrskurður hefur vakið mikla athygli, þar sem hann gengur þvert á ákvæði laga um stjórnun fiskveiða, sem segir að fiskstofnarnir séu sam- eign þjóðarinnar. Svo virðist sem nokkurs tvískinnungs gæti í ákvörð- unum og athöfnum ríksivaldsins í þessum málum. Löggjafarsamkundan segir okkur að hér sé um sameign þjóðarinnar að ræða en framkvæmda- valdið virðist ekki vilja lúta þeim úrskurði og krefst þess að handhafar aflaveiði-heimilda eignfæri þær í bók- haldi hjá sér, greiði af þeim stimpil- gjöld við sölu skipa og svo nú síðast greiði af þeim erfðafjárskatt. Er þetta sameign þjóðarinnar? Kristján Ragnarsson, formaður LIU: Finnst þetta nokkuð skondið „Okkur finnst þetta nokkuð skondið að því leyti að lögin segja að þetta sé sameign þjóðarinnar og um það höf- um við aldrei efast og aldrei verið að gera tilkall til annars. Við höfum haft þennan afnotarétt vegna þess að við áttum skipin og kerfið er sett á til að takmarka veiðar en ekki til að gefa mönnum rétt. Þess vegna finnst mér ríkið seilast nokkuð langt í skatt- heimtu sinni með því að gera þetta að skattstofni. Mér finnst ríkið sjálft vera að renna stoðum undir eignarhaldið. Það kemur hvert atvikið eftir annað, þetta er þriðja atvikið sem kernur upp, hin voru krafa fjármálaráðherra um eignfærsluna og afskriftina og í þriðja lagi var það gagnvart stimpilgjaldi og þinglýsingarkostnaði, þá er veiði- heimildin metin til viðbótar við skips- verð.“ Er ríkisvaldið að þessu til að geta náð í peninga af þeim sem hafa yfirráð yfir aflaheimildum? „Ríkisvaldið er að þessu til að geta skattlagt viðkomandi en víkur frá hinu prinsippinu.“ Hver er þá réttur þeirra sem hafa yfirráð yfir þessum heimildum? „Það er það sem við teljum það jákvæða við þetta, þetta festir kerfið í sessi.“ Grétar Mar Jónsson skipstjóri: Líst enean veginn á petta „Mér líst engan veginn á þetta, því þetta er einn liðurinn í að festa þetta þannig að það verði komin erfðafesta á þetta. Maður hefur bent á gegnum tíðina að þetta væri það sem er að þessari fiskveiðistjórnun, hvernig þessir hlutir þróast.“ Nú virðist sem ekki fari saman ákvarðanir löggjafans og fram- kvæmdavaldsins, t.d. með eignfærslu á kvóta? „Þarna er framkvæmdavaldið farið að taka fram fyrir hendurnar á löggjaf- anum, það er augljóst. Þetta sýnir manni alltaf betur og betur hvað við erum á miklum villigötum með þessa fiskveiðistjórnun. Kristján Ragnars- son grætur krókódílstárum yfir því að þurfa að borga þetta, en þetta festir 29

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.