Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Qupperneq 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Qupperneq 37
VÍKINGUR það sama og aðrir. Ég held líka að sjávarloftið hafi gert mér gott, það er miklu heilnæmara en helvítis rykið í landi. Sjómennskan gat verið erfið vinna, og það var svo að annaðhvort þoldu menn þetta eða þeir gáfust upp. A togurunum var nóg að borða og kraftmikill matur.“ Guðmundur segir það hafa verið miklar breytingar þegar nýsköpunar- togararnir komu. Það hafi verið allt annað að vera með díselvélar og eins hafi þeir verið miklu stærri og betri skip en þeir eldri, öruggari og betri. Lík flaut aftur með síðunni Guðmundur var á sjó í báðum styrj- öldunum. Hann var kornungur í fyrra stríðinu, háseti á kútter Sigríði, en í seinna stríðinu var hann stýrimaður á Skutli frá ísafirði. „Ég man í seinna stríðinu, þegar ég var að toga á Halanum að morgni í góðu veðri, að ég sé lík fljóta aftur með síðunni. Það höfðu verið átök einhvers staðar. Það kom ekki til álita að ná líkinu, það mátti bara ekki. Þetta var sláandi. Við vorum talsvert í siglingum og það henti okkur ekkert. Það var ekki meiri hætta að sigla í stríðinu en vera á veiðum við Island.“ Guðmundur segir að í því mikla fiskiríi sem var í stríðinu hafi skipin verið það illa lestuð að þau hafi vart verið sjófær, en eftir að kolaboxin voru minnkuð og lestirnar stækkaðar hafi ástandið batnað til muna. „Þá lágu skipin miklu betur. Það er ekki nóg að vera með stórt skip ef það er lestað þannig að það sé varla sjóhæft. Aður en farið var í siglingar var kom- ið í land og kol tekin. Við það urðu skipin miklu betur lestuð, ekki eins þung að framan og þau voru þegar komið var í land af fiskiríi. Það var hver krókur og kimi notaður undir fisk enda sögðu Bretarnir íslensku togarana einkennilega, það væri eins og þeir væru úr gúmmíi; þeir stækk- uðu við hvern túr, alltaf meiri og meiri fiskur um borð. Það er bölvaður sóðaskapur hvernig farið var með fiskinn á stríðstímanum, það var ekki hugsað um annað en að koma sem mestu um borð. Á eðlileg- um tímum voru þrjár til fjórar hillur í hverri stíu, en í stríðinu var það orðið þannig að aðeins var ein hilla í stíu, það er skömm að þessu.“ Eftir að stríðinu lauk var Goðanes- ið, þar sem Guðmundur var stýrimað- ur, meðal fyrstu skipana sem komu til Þýskalands. „Við vorum að fara til Bretlands þegar okkur var tilkynnt í skeyti að fara til Hamborgar. Þetta var engin gleðifrétt, þar sem Norðursjórinn var morandi í tundurduflum. Við vissum að það var fjögurra mílna siglingabelti sem við töldum öruggt. Þetta gekk vel og þegar við komum til Hamborgar blasti við okkur agaleg sjón. Fólkið var hungrað og illa haldið. Marshall- hjálpin var að komast í gang og þetta var fyrsta sendingin af fiski sem kom þangað. Freymóður Jóhannesson frá Patreksfirði fór um borð ásamt Þjóð- verja, en Freymóður bjó í Þýskalandi. Freymóður spurði mig hvort hægt væri að fá að éta um borð, þar sem í landi væri hungur og erfiði. Við buð- um þeim að borða en sá þýski afþakk- aði að borða. Ástæðan var sú að hann taldi sig ekki þola matinn, taldi hann of þungan. Við buðum honum þá að fá léttari mat, mjólk og brauð. Ástandið í landi var skelfilegt. Fólkið bjó í húsarústum og þegar við tókum að landa kom fólkið og hirti fiskinn, það varð ekkert við það ráðið. Það var sama hvar við komum; alls COHflf_GÓLFMOTTAN Coral gólfmottan fangar óhreinindi og bleytu og auðveldar þér þrifin. 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.