Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Síða 52

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Síða 52
VIKINGUR Stafnbúi gengst fyrir ráðstefnu: Islenskur sjávarútvegur á alþj óða ve 11 vangi Laugardaginn 25. mars stendur Stafnbúi, félag sjávarútvegsfræði- Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráb- herra er medal ræbumanna á ráb- stefnunni. nema við Háskólann á Akureyri, fyrir ráðstefnu um sjávarútvegsmál undir yfirskriftinni „íslenskur sjávarútvegur á alþjóðavettvangi". Ráðstefnan hefst klukkan 10:00 í Háskólabíói og er áætlað að henni ljúki um kl. 16:30 og munu fulltrúar ýmissa hagsmunaaðila halda tölu. Dagskrá hefst fyrir hádegi með því að Jón Þórðarson, forstöðumaður sjávar- útvegsdeildar, setur ráðstefnuna klukkan 10:00. Aðrir sem tala fyrir hádegi eru Þorsteinn Pálsson sjávarút- vegsráðherra, Jóhann Sigurjónsson, aðstoðarforstjóri Hafrannsóknastofn- unar, Jónas Haraldsson, lögfræðingur Landssambands íslenskra útvegs- manna, og Sævar Gunnarsson, for- maður Sjómannasambands Islands. Eftir hádegi hefst dagskrá klukkan 13:00 með ræðu Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra. Næstir tala Sighvatur Bjarnason, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar- innar, og Grímur Valdimarsson, for- stöðumaður Rannsóknastofu fisk- iðnaðarins. Að því loknu tala fulltrúar stjórn- arandstöðunnar í 10 til 15 mínútur hver. Fyrir Alþýðubandalag talar Steingrímur J. Sigfússon, fyrir Framsóknarflokk Halldór Ásgríms- son, fyrir Kvennalista Jóna Valgerður Kristjánsdóttir og fyrir Þjóðvaka Ágúst Einarsson. Að því loknu verða fyrirspumir og almennar umræður. Þátttökutilkynningar sendist í bré- fasíma 96-30998 sem fyrst, vegna tak- markaðs miðaframboðs. Gámur Verkfall kennara hefur komið illa við nema í Stýrimannaskólanum, sem og aðra nemendur. Guðjón Ármann Eyjólfsson, skólameistari Stýrimannaskólans í Reykjavík, segir verkfall sérstak- lega erfitt vegna nema í stýri- mannaskólum og Vélskólanum. „Þjóðfélagið má ekki við því að þessir nemendur útskrifist ekki. Það hefur ekkert að segja þótt ekki útskrifist lögfræðingar eða viðskiptafræðingar eitt ár. Þjóðfé- lagið þolir hins vegar ekki að okkar fólk útskrifist ekki.“ Gámur hefur fyrir því ágætar heim- ildir að þegar verið var að landa í nokkrum bátum í einni verstöðinni hafi samtals 13 tonnum úr tveimur bátum verið landað framhjá, þrátt fyrir að veiðieftirlitið hafi verið á bryggjunni til þess að fylgjast með. „Það þarf ekki nema að villa unt fyrir þeim, dreifa athygli þeirra með því að setja á svið eitthvert sjónar- spil,“ sagði sjómaður sem rætt var við. Eins og komið hefur fram eru verð- mætustu veiðiferðirnar farnar að nálgast aflaverðmæti fast að 100 milljónum króna. Sjómenn geta leikið sér að því að reikna út hversu mikil kostnaðarhlutdeildin úr þannig veiðiferð er og þá hljóta allir, sem sjá útreikningana, að vera sammála um hversu stórkostlegur ávinningur útgerða úr þeim veiðiferðum er. 52 k

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.