Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Síða 55

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Síða 55
Þórður Hjartarson, hvatamaður að stofnun félags um nýtingu sjávarspendýra: VÍKINGUR Þetta er ekki feimri' ismál lengur Að undanförnu hefur ekki borið mikið á umræðu um hvalveiðar og nytjun sjávarspendýra almennt. Svo virðist sem þessi mál séu að falla í gleymsku í allri umræðunni um kvótakerfið og fiskveiðistjórnunina. Vitað er að hvalastofninn og stofnar annarra sjávarspendýra eru orðnir það stórir að huga má að því að nytja þá. Jafnframt er vitað að þessi sömu sjáv- arspendýr éta mikið magn af þeim fiski, sem sjómenn berjast nú um að fá að veiða. Stofnað hefur verið Félag um sjávarnytjar, sem er vettvangur þeirra sem vilja opna umræðu um þessi mál og kalla fram aðgerðir stjórnvalda í þeim tilgangi að nytja betur sjávarspendýr en nú er gert. Einn af forsvarsmönnum samtakanna er Þórður Hjartarson. Markmiðið að berjast fyrir að hefja hvalveiðar „Þetta félag hefur þann megintil- gang að ræða um nýtingu sjávarspen- dýra og þrýsta á stjórnvöld um að taka þá umræðu upp og að standa líka nteð stjórnvöldum í því sem framundan er. Það er ekkert áhlaupaverk að fara utan og segja við fjölmiðla þar að það sé stefnt að því að veiða spendýr. Mark- miðið er að berjast fyrir því að hefja hvalveiðar og að talað sé bæði um hvali og önnur sjávarspendýr sem hluta af náttúrunni. Það er ekkert feimnismál að tala um að þessi dýr éta físk.“ Hver var aðdragandinn að stofnun félagsins? „Aðdragandinn er sá að eftir að Norðmenn hófu aftur hrefnuveiðar og árangur þeirra í markaðsstarfsemi erlendis fór batnandi - þeir fengu hærra verð fyrir sjávarafurðir — þá fannst mönnum sem hafa haft lifi- brauð sitt af hval korninn tími til að gera eitthvað. Við viljum opna þetta félag fyrir sem flestum, bæði sjó- mönnum almennt og áhugamönnum. Okkur finnst t.d. selveiðimenn á sama báti; þó svo að ekki sé bann við sel- veiði, þá eru þeir að veiða skepnur sem þeir fá óskaplega lítið fyrir miðað við gæði vörunnar sem þeir eru með í höndunum. Þetta félag er öllum opið.“ Áttu von á að margir sýni þessu áhuga? „Já, nú þegar eru skráðir um 100 félagar. Sjómenn hafa sýnt þessu máli mikinn áhuga, enda virðast þeir oft mun tilfinningaríkari en aðrir, en við viljum að útgerðarmenn séu einnig með. Það má spyrja af hverju eigi að skilja þetta mál frá almennri umræðu um sjávarútvegsmál. Núna eru að koma frarn frá hvalarannsóknadeild Hafrannsóknastofnunar tölur um það hversu rnikið hvalir éta af fiski og þetta eru tölur sem þeir telja sig geta staðið á. Þeirra tölur verða mun áreið- anlegri eftir þá miklu talningu sem á að fara fram í sumar, en þetta er eins og að henda peningum út um glugg- ann: Það á að setja fleiri milljónir í að fínkemba hafsvæðið í kringum landið og telja þar, en svo á ekkert að nýta upplýsingarnar sem þar koma fram.“ 55

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.