Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Page 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Page 22
Alþjóða rannsóknarstofnun far- manna, Seafarers’ International Res- earsch Center, SIRC, lauk fyrir skömmu skýrslugerð fyrir Alþjóða siglingamálastofnunina, IMO, um eðli og umfang á fölskum atvinnu- skírteinum farmanna víðs vegar um heim. Vandamálið er vel þekkt en ekki hafa legið fyrir upp- lýsingar um hversu víðtækt það er. Könnun SIRC byggði á úrtaki sem náði til 52 stjórnsýsluaðila er tengjast kaupskipageiranum. Könnunin leiddi í ljós 12.653 fölsk atvinnuskírteini farmanna, sem SIRC telur vera aðeins toppurinn á ísjakanum. Stofnunin telur reynd- ar að unr 80% skírteinanna séu ólögleg sem tengjast ríkjum sem bjóða upp á hentifána fyrir kaup- skipaútgerðir og landa sem leggja til mikinn fjölda farmanna á hin- um alþjóðlega vinnumarkaði kaupskipa undir hentifána. Einnig hafa nokkur önnur lönd, eins og Grikkland, Kýpur og Fil- ippseyjar, hafið átak í að fækka fölskum atvinnuskírteinum far- manna. Hvað ber að gera? Það þarf ekki að koma á óvart að ýmisskonar spilling þrífst í mörgum þeirra ríkja sem bjóða upp á hentifána fyrir kaupskipaút- gerðir. Spilling og glæpastarfsemi verður sennileg seint upprætt í þessum ríkjum og þess vegna má reikna með að töluverður fjöldi af fölskum atvinnuskírteinum far- manna verði í umferð næstu árin. Jafnvel má búast við því að þeim fjölgi þar sem fyrir liggur að háset- ar á kaupskipum sýni með skír- teini að þeir uppfylli ákvæði um starfsþjálfun samkvæmt STCW-95 samþykktarinnar. Þessi ákvæði samþykktarinnar þarf að uppfylla í janúar 2002. Falskur stýrimaður: David Cockroft, framkvæmdastjóri ITF, i stýrimannsbúning með atvinnuskírteini yfirstýrimanns útgefíð af siglingamálayfirvöldum í Panama. David hefur aldrei starfað til sjós. Hvað er falskt skírteini? Hugtakið „falskt skírteini” hefur nokkuð víða merkingu. Merking- in nær til eftirfarandi skýringa: * Með rangri upplýsingagjöf um aldur, próf, þjálfun o.íf. er hægt að verða sér út um skírteini gefið út af löglegum aðilum. * Ólögleg sala/útgáfa skírteina spilltra starfsmanna siglingamálayfirvalda. * Fölsun skírteina. * Útgáfa skírteina af aðila sem sér um starfsþjálfun farmanna, en uppfyllir ekki kröfur sem gerðar eru samkvæmt alþjóðastaðli STCW-95. Auðveldur leikur Til að sannreyna og fylgja eftir skýrslu SIRC, varð David Cockroft, fram- kvæmdastjóri Alþjóðasambands flutn- ingaverkamanna, ITF, sér úti um at- vinnuskírteini yfirstýrimanns ásamt sjó- ferðabók útgefna af siglingamálayfirvöld- um í Panama. Pakkinn kostaði að vísu milli 4.000 og 5.000 Bandaríkjadollara, en fyrirhöfnin var ekki mikil. Til upplýs- inga má geta þess að David Cockroft hef- ur aldrei starfað til sjós. ITF hélt blaðamannafund um skírtein- ismál Davids í mars síðastliðinn. Fundur- inn vakti mikla athygli og hefur leitt til vandræða fyrir stjórnvöld í Panama, sem hefur leyst frá störfum fjölda starfsmanna sem störfuðu við útgáfu skírteina á veg- um siglingamálayfirvalda þar í landi. Bent hefur verið á ýmsar leiðir til þess að fækka fölskum skírtein- um. Sú leið sem er hvað athyglis- verðust er sú að IMO komi sér upp miðlægum gagnagrunni um opinbera útgáfu atvinnuskírteina farmanna um allan heirn sem tengja má síðan við ríkishafnar eftirliti. Með þessu móti verður hægt að fækka fölsuðum skírteinum, en það kemur ekki í veg fyrir útgáfu skírteina, af þar til bærum aðil- um, á fölskum forsendum. Til að leysa það vandamál þarf að herða eftirlit og vanda vinnubrögð við útgáfuna. Og ekki síður þurfa kaupskipaútgerðir og samtök farmanna að láta til sín taka í þessu máli. Heimildir: Fraudulent Certificates, ITF, maí 2001. Sjooffiseren, nr. 4, 2001. Benediht Valsson tók saman □. 22 - Sjómannablaðið Víkingui

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.