Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Page 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Page 30
Helgi Jónsson rœðir við Hrafn Ragnarsson, skipstjóra frá Ólafsfirði Kominn hringinn eftir nœr hálfa öl Aftur illukarl son og Gunnar t>. Sigvaldason, sem á- samt fleirum reka Þormóð ramma-Sæ- berg hf., eitt stærsta útgerðarfyrirtæki landsins.” Við rifjum upp Ólafsfjörð fyrri tíðar, sem í flestra augum er horfin í blámóðu minninganna, reyn- um að sjá fyrir okkur lítinn sjö ára gutta sem er nýkominn í þetta pláss sem lifir fyrir fisk og aftur fisk. „Ég man,” seg- ir Hrafn og hrekkur upp úr minningu, brosir út í ann- að, „ég man að ég var að stökkva á milli báta, fór aftur fyrir mig i sjóinn, en Kiddi Árna, skipherra á Hrafn Ragnarsson er með reyndari sjómönnum eftir 47 ára feril. Fjórtán ára gamall fór hann fyrst til sjós, þá á trillu sem gerð xar út frá Ólafs- firði. Nú er Hrafn kominn í hring. Hann er aftur orðinn trillukarl á sjötugsaldri og þxí kominn á upphafsreit. En það tók hann tœplega hálfa öld að fara hringinn. Hrafn er rólegur maður og lœt- ur lítið yfir sér. Hógxær með af- brigðum og lítið fyrir að stœra sig. Hann xar heldur ekki yfir sig spenntur fyrir xiðtali. „Ég hef ekkert að segja,” xar xið- kxœðið í fyrstu. Tók bara í nef- ið og xonaðist sennilega til að blaðamaður gæfist upp. En þá xar bara að henda sér út djúpu laugina og byrja á einhxerju sem fær mann til að rifja upp ógleymanlegu árin. „Ég var sjö ára þegar foreldrar mínir fluttu til Ólafsfjarðar. Foreldrar mínir voru þau Ragnar Þorsteinsson, kennari og biblíusafnari, og Sigurlaug Stefáns- dóttir. Áður áttum við heima á Skaga- strönd. Pabbi var kennari á Ólafsfirði og þar bjuggu foreldrar mínir í tíu ár. Það var reyndar algjör tilviljun að þau fluttu til Ólafsfjarðar. Við vorum alls níu systk- inin en þau voru ekki öll fædd þegar við fluttum.” Hrafn segir að allar helstu minningar æskuáranna tengist höfninni og gömlu Hrajn Magnússon hefur sútt sjóinn í tæpa hálfa öld. beitningaskúrunum. „Maður var allar stundir niður við höfn. Það var lífið okk- ar í þá daga. Pabbi var að vísu ekki sjó- maður, heldur kennari og mikill grúsk- ari, en hann var reyndar í síldarvinnu á sumrin. Meðal æskufélaga minna voru jafnaldrar mínir þeir Svavar B. Magnús- Geirfugli, dró mig upp á hárinu, en ég var svo hræddur að ég fann ekkert fyrir því!” Hrafn skellihlær við tilhugsunina. En ekki eru allar minningar skemmti- legar. Hrafn missti bróður á þessum árunt. Bróðir hans drukknaði í höfninni í Ólafsfirði. 30 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.