Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Page 38

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Page 38
Megingalli kvótakerfisins er óvissan um varanleika þess „Ég hef undrast það dálitið hversu mikiðfrelsi menn hafa haft til aðflytja sigfrá einni tegund til annarrar,” segir Árni Vilhjálmsson. Árni Vilhjálmsson pró- fessor og stjórnarfor- maður í Granda og Hval hf. segir í xiðtali xið Sœmund Guðxins- son, að það séu sár xonbrigði að fiskistofn- ar hafi ekki stœkkað undir núxerandi kxóta- kerfi. Hann segir að upplausnarxirði margra sjáxarútxegs- fyrirtœkja sé langtum hœrra en markaðsxirði, er hlynntur þxí að út- gerðin greiði mun meira fyrir xeiðiheim- ildir og telur ekki þung hagrœn rök fyrir miklu stcerri fyrirtcekjum í sjáxarútxegi. Árni segir útlendinga ekkert hafa að gera inn í íslenskan sjáxarútxeg að sinni og að xið þurfum ekki á þeim að halda. „Síðasta ár sker sig úr hvað varðar rekstrarafkomu og á því eru tvær megin- skýringar sem eiga við um velflest fyrir- tæki. Það er gengisfallið sem varð á árinu en flest sjávarútvegsfyrirtæki eru talsvert skuldug og langflest þeirra með megin- hluta skulda sinna í erlendri mynt. Þau verða því fyrir verulegu höggi af þessum sökum. Ég get tekið sem dæmi að ef er- lendar skuldir Granda eru sex milljarðar á árinu þá þýðir 10% gengisfall 600 milljón króna hækkun skulda. Annað sem er sameiginlegt hjá fyrirtækjunum er hátt olíuverð. Svo bætist við það sent varðar sérstaklega sjávarútvegsfyrirtæki í uppsjávarfiski, en það er mjög lágl verð á mjöli og lýsi, annað árið í röð. Við þetta má bæta að nokkur fyrirtæki reiða sig mjög á rækjuvinnslu og þar varð afla- brestur í fyrra annað árið í röð og lágt rækjuverð; upp úr áramótum breyttust aflabrögð á rækju þó mjög til hins betra. En afkoman í fyrra var sem sagt mjög slæm en árin þar á undan mjög þokkaleg hjá mörgum fyrirtækjum,” segir Árni þegar hann er spurður um afkomu sjáv- arútvegsfyrirtæja nú um stundir. - Erum við aðfá nógu góða nýtingu úr fiskistofnunum? Þeir hafa ekki stækkað eins og menn gerðu sér vonir um? 38 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.