Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Síða 48

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Síða 48
Nokkur atriði úr skýrslu stjórnar Félags íslenskra skipstjórnarmanna sem lögð varfram á aðalfundi félagsins þann 28. apríl síðast liðinn Guðjón Petersen framkvœmdastjóri FSK flytur ársskýrslu stjórnar. Jónas Ragnarsson var kjörinn formað- ur FSK til næstu tveggja ára og Eiríkur Jónsson varaformaður. Ákveðið var að þakka Guðlaugi Gíslasyni vel unnin störf við undirbúning að stofnun Félags ís- lenskra skipsljórnarmanna og störf hans að félagsmálum stéttarinnar í yfir 30 ár með því að gera hann að heiðursfélaga FSK. Sex félagsfundir voru haldnir á ár- inu, tveir sérstaklega fyrir farmenn vegna kjaradeilu þeirra og þrír með félögum innan Landhelgisgæslunnar af sama til- efni. Almennur félagsfundur var svo haldinn 28. desember á Akranesi. Atvinnumál Um áramótin 1999/2000 voru starfandi skipstjórnarmenn í FSK 214 og skiptast eftir greinum sem hér segir: Farmenn 91, ferjumenn 14, fiskimenn 85 og varð- skipsmenn 24. Þar sem ekki eru til sam- anburðartölur um þann fjölda félaga sem voru í starfi hjá Hafþóri og Kára árið 1999 er ekki hægt að gera grein fyrir breytingum í fjölda starfandi fiskimanna innan FSK á milli ára, en innan far- manna, ferjumanna og varðskipsmanna hefur orðið fækkun um 14 starfandi skipstjórnarmenn milli ára. Hér er þó ekki allt sem sýnist þar sem nú eru s.k. lausamenn í afleysingum, sem áður voru skráðir starfandi, ekki taldir með. Á ár- inu komu tveir skipstjórar á Hríseyjar- ferjunni Sævari inn í FSK og fer félagið nú með fullt samningsumboð fyrir þá. Einnig var við samningsgerðina við samninganefnd ríkisins óskað eftir þeirri breytingu á samningnum að hann tæki til skipstjórnarmanna hjá Landhelgis- gæslunni, en ekki eingöngu á varðskip- um rlkisins eins og áður var, þannig að hann tæki líka til skipstjórnarmannanna sem eru í sjómælingadeild stofnunarinn- ar. Menntunarmál Eins og flestum er kunnugt komst ís- land inn á svokallaðan Hvítlista hjá Al- Ingvi R. Einarsson og Eiríkur Jónsson stjórn- armenn. Árið 2000 var fyrsta starfsár Félags ís- lenskra skipstjórnarmanna eftir stofnun þess 12. ágúst 2000. Hefur starfsemin að mestu helgast kjaramálum félaganna og voru þrennir kjarasamningar til lykta leiddir á timabilinu þ.e. vegna skip- stjórnarmanna á farskipum í nóvember s.l, hjá Landhelgisgæslu í mars s.l. og á Hríseyjarferjunni Sævari nú í apríl, en það er sérstakur samningur. Annað meg- in verkefni ársins var að vinna að málum sem sameining þeirra félaga sem nú mynda FSK hafa haft í för með sér. Stjórnin hélt 6 stjórnarfundi frá stofn- un og voru mörg mál rædd og afgreidd sérstaklega á þessum fundum, auk al- mennra afgreiðslu- og framkvæmdamála. 48 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.