Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Síða 56

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Síða 56
; ASKEU & Hátt í helmingur allra íslenskra skipanafna er mannanöfn. Akurey fellur undir örnefnaflokkinn sem er 2. stærsti flokkur skipanafna. Leiftur, Léttir, Mjölnir, Móði, Neisti, Rauður, Skeiðfaxi, Sleipnir, Snarfari, Svali, Sæfari, Sæfaxi, Trölli, Tvistur, Vestri, Vinur, Visir, Próttur, Þytur og Öðlingur. Hryssur: Busla mín, Dimmalimm, Eld- ing, Gletta, Gola, Góa, Gæfa, Hvönn, Lipurtá, Nornin, Skttta, Snotra, Snælda, Stjarnan, Venus, Von, Æskan, Ör. Sum nöfnin eru meiri hestanöfn en önnur, nöfnin með -faxi og -toppur, Pyt- ur og Öðlingur, og hryssurnar Gletta, Snælda og Stjarna. Það skal nefnt hér að af 53 hestanöfnum eru 22 til sent nöfn á nautum líka, sbr. athugun Aðalsteins Ey- þórssonar í ritgerðinni Hvað á bolinn að heita? (Ritgerð í eigu Málvísindastofnun- ar Háskóla íslands). Það er eftirtektarvert að hestanöfn eru álíka mörg hlutfallslega á skipum og bát- um en þau eru næststærsti hópur báta- nafnanna, 93 talsins. Hér verða gefin öll þau hestanöfn sem koma fyrir sem bátanöfn, fyrst hestar: Askur, Austri, Blámi, Blíðfari, Blossi, Blær, Byr, Draumur, Dropi, Dvergur, Ein- fari, Engill, Farsæll, Félaginn, Fengur, Fjarki, Fleygur, Freyðir, Funi, Fönix, Garpur, Garri, Gári, Geisli, Geysir, Gjaf- ar, Glaður, Glaumur, Glói, Glæsir, Gnýr, Goði, Gosi, Gullskór, GuIItoppur, Gust- ur, Gyllir, Gýmir, Hrímnir, Hvati, Jarl, Júpíter, Kappi, Kátur, Klaki, Kvistur, Lagsi, Landi, Leikur, Léttir, Ljóri, Ljúfur, Loki, Mars, Merkúr, Mori, Mökkur, Naggur, Neisti, Pjakkur, Prins, Prúður, Reykur, Sleipnir, Slyngur, Snarfari, Snarpur, Sómi, Sporður, Stigandi, Storm- ur, Straumur, Strákur, Suðri, Svalur, Sæ- fari, Sörvi, Tryllir, Trölli, Tvistur, Úði, Vaskur, Vinur, Vísir, Vöggur, Þeyr, Þrasi, Þristur, Þróttur, Þytur, Öggur, Ögri, Öng- ull. Hryssunöfnin eru 22: Ausa, Blíða, Brimkló, Elding, Eljan, Gletta, Gola, Góa, Gæfa, Kvika, Lukka, Orka, Perlan, Pólstjarnan, Röst, Skotta, Skuld, Stjarna, Tíbrá, Von, Æskan, Ör. Eins og sjá má eru hryssunöfnin mun færri sem bátanöfn en hestanöfnin, hvaða ástæður sem Iiggja að baki þvi. At- huga ber að ýmis þessara nafna koma líka fyrir sem mannanöfn. Sum þessara nafna eru meiri hestanöfn en önnur. Þannig eru týpísk heslanöfn Glói, Goði, Gulltoppur, Gustur, Hrímnir, Léttir, Sleipnir og Þytur. Og týpísk hryssunöfn eru:Gletta, Perla og Stjarna. „Sérstök skipanöfn” 4. stærsti flokkur skipanafna er þau nöfn sem ég kalla “sérstök skipanöfn”, en það er flokkur sem fundinn er með því að útiloka allt mögulegt annað, mannanöfn, örnefni, hestanöfn, gælu- nöfn manna, dýraheiti, gerviörnefni og í- búanöfn. í þessum flokki eru 50 skipanöfn. Ég gef tæmandi skrá urn þau: Amía, Avona, Árbakur, Beitir (Beitir/- Beiti var sækonungur, en var líka heiti skips), Dögun, EOS, Faldur, Fengsæll (3), Fjölvi, Flakkari, Fortúna, Frarn, Frár, Freri, Frístund, Gjafi, Gullborg, Gullfari 11, Hafaldan, Haffari, Hafgolan, Happasæll, Harðbakur, Herkúlcs, Hrímbakur, íslandsbersi, Kan (= khan, mongólskur og tyrkneskur höfðingjatit- ill?), Kap, Kló (kló er hluti segls), Lottó, Lóðsinn, Maríusúð, Orion 11, Óskasteinn, Óvissa, Paradís, Pilol, Pos- eidon, Siglir, Sigurfari, Sigurvon Ýr, Skutull, Sólbakur, Stundvís, Sæljómi, Tjálfi, Vigri (kenndur við Vigur eða = vigraselur ‘útselur’), Völusteinn, Þeysir, Þórshamar. Hér eru á meðal nöfn úr goðafræði Grikkja og Rómverja, EOS, Poseidon, Fortúna og Herkúles, og einnig nor- rænni, Þórshamar og Tjálfi (= Þjálfi). (Til var skúla með þessu nafni af enskum eða skoskum uppruna, skrifað Thjalfe.). Nefna má að 3 skip heita nafninu Feng- sæll og eru þá væntanlega fiskiskip. Þess gætu verið dænti meðal vélbáta að þeir hafi fengið nafn eftir heiti á vélinni, t.d. 56 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.