Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2001, Qupperneq 64
barn, stökk með hann ofan að bátnum
og lagði hann niður í skutinn, ýtti svo frá
landi, settist undir árar og reri eins og
óður væri.
l’etta tiltæki Hrómundar kom svo
skyndilega og öllum að óvörum að eng-
inn gat verulega áttað sig á því fyrr en
báturinn var kominn á flot. Enginn af
öllurn þessum fílefldu mönnum hafði
haft tækifæri til að hindra heljarmennið
á minnsta hátt. En þegar báturinn var
kominn frá landi var eins og allir vökn-
uðu af draumi, ekki síst þegar þeir
heyrðu að dr. Patrik kallaði á hjálp. - All-
ir hlupu nú til bátanna sem voru góðan
spöl inn með fjörunni og margir þeirra
upp í naustum. En þegar þeir komu að
fyrsta bátnum og voru í þann veginn að
hrinda honum fram sáu þeir að Hró-
mundur var að beygja fyrir nesið og
leggja út í röstina.
„Nú er of seint að elta þá,” sagði Don-
ald Gaskell, og hann vissi hvað hann
söng, karl sá; „þeir eru þegar komnir út
í röstina,” sagði hann, „og það verður
bani þeirra og ykkar allra ef þið reynið
til að ná dr. Patrik úr höndum gamla
mannsins því hann mun halda teknu
taki í lengstu lög. - Bátunum hvolfir í
öðru eins sjóröti ef þið gjörið nokkra
slíka tilraun, og það er skárra, þó illt sé,
að tveir farist heldur en tíu eða tólf. - En
sá gamli heljarkarl mun ná til eyjarinnar
því hann þekkir betur á sjóinn en við. -
Hann er maður, drengir mínir, hann er
maður. - Lofum honum því að ráða héð-
an af.”
Menn sáu að þetta var satt sem Donald
sagði, að það var alveg þýðingarlaust að
elta þá úr þessu í því skyni að reyna að
ná dr. Patrik úr höndum Hrómundar.
Sumir vildu að stærsti báturinn væri lát-
inn fara í hámótt á eftir þeim, en aðrir
töldu það úr af þeirri ástæðu að Hró-
mundur mundi ekki fara eins varlega ef
hann sæi bát koma á eftir sér. Menn
hættu því alveg við að veita þeim eftirför.
- En allir þeir sjónaukar sem til voru í
Spry Bay voru voru rækilega notaðir
þann dag. Og öllum þótti vænt um það
að kona læknisins og bæði börnin hans
voru ekki í þorpinu meðan á þessu stóð.
En það er af dr. Patrik að segja að þeg-
ar hann loks fékk risið upp í bátnum sá
hann að hann var kominn svo langt frá
landi að engin tiltök voru að hann gæti
vaðið í land þó hann henti sér út úr
bátnum - en hann kunni ekki til sunds. -
Honum varð það fyrst fyrir að kalla á
hjálp. Hann sá mennina á landi hlaupa
til bátanna, og hafði um tíma von um að
þeir gætu komið sér til hjálpar áður en
Hrómundur kæmist fyrir nesið. En sú
von brást. Hann grúfði sig þá niður í bát-
inn, las bænir sínar og bjóst við dauðan-
um á hverri stund - og bað heitt og lengi.
Allt í einu tók hann eftir því að allmik-
ið af sjó var komið inn í bátinn. Og hon-
um fannst það mundi vera skylda sín að
gera ofurlitla tilraun að bjarga lífinu með
því að taka austur-
trogið og fara að
ausa. Hann sá að
þeir voru þegar
komnir yfir röstina
og nokkuð út á
sundið og að veðr-
ið var heldur að
lægja, en öldu-
gangurinn var þó
helst til of mikill
fyrir svo lítinn bát.
Og dr. Patrik tók
til við að ausa og
var stórvirkur og
fann að honum óx
kjarkur við það. -
Við og við leit
hann yfir á þóftuna
þar sem heljar-
mennið sat og reri
upp á líf og dauða.
Pað marraði í keip-
unum, það hrikti
og brakaði og brast
í borðum og þóft-
um, og árarnar
svignuðu eins og
þær væru þá og
þegar í þann veg-
inn að brotna. -
Það voru alíslensk-
ar járngreipar sem
héldu um hlummana á árunum þeim. Og
átökin voru ákafleg því maðurinn tók á
öllum sínum ógnarkröftum og reri uppi-
haldslaust. Hann kreisti saman varirnar
og talaði ekki orð, en svitinn bogaði af
enninu og rann í lækjum niður andlitið
og ofan á bringuna. - Bátnum miðaði lít-
ið við hvert áratog, en honum miðaði þó
ögn. Nær og nær eyjunni komust þeir.
Uppihaldslaust var róið, og uppihalds-
laust var ausið. Að lokum komust þeir i
hlé við eyjuna, og þá var stríðið á enda.
Og þegar þeir lentu tók dr. Patrik eftir
því að blóð hafði sprungið undan hverri
nögl á fingrum Hrómundar.
Þegar heim kom í kofann var farið að
dimma, en konan var enn lifandi. Dr.
Patrik tók nú til verka, og um morgun-
inn var konan úr allri hættu. - Og nú
voru þau orðin sjö börnin hans Hró-
mundar.
Þegar dagaði var komið gott veður, en
um dagmál lenti bátur Hrómundar á ný í
Spry Bay. Þá tóku menn eftir því að dr.
Patrik var orðinn hvítur fyrir hærum al-
veg eins og áttrætt gamalmenni (eða sú
saga gengur að minnsta kosti þar austur
við hafið), en gamli Hrómundur var al-
veg eins og hann átti að sér; rólegur,
þögull, kaldur og forneskjulegur; og það
sáu menn að honum þótti verulega vænl
um dr. Patrik og að dr. Patrik var búinn
að fyrirgefa honum af öllu hjarta.
En það var hann Donald Gaskell sem
gjörði þá uppástungu að þorpsbúar
tækju sig til og byggðu Hrómundi gott
bjálkahús þar í þorpinu og keyptu handa
honum nokkrar ekrur af landi svo annað
eins tilfelli kæmi ekki fyrir aftur; og
sýndi hann fram á að eyjan væri alveg ó-
hæfur bústaður fyrir hvítan mann með
konu og ungbörn. Menn gjörðu góðan
róm að tillögu hans. Og fáum vikum síð-
ar var Hrómundur og fjölskylda hans
komin alflutt til Spry Bay. Og þar dó
Hrómundur fyrir örfáum árum síðan. -
Börn hans náðu góðri menntun, og ein
dóttir hans giftist elsta syni dr. Patriks.
Og það var hann Donald - sá heljarjöt-
unn, hann Donald Gaskell - það var
hann sem sagði það oft og mörgum sinn-
um að einsdæmi mundi það vera að einn
aldraður og næstum mállaus útlendingur
hefði gripip fullvaxinn karhnann úr
höndunum á stórri sveit háskoskra og
írskra manna á besta skeiði og hlaupið
burt með hann nauðugan um hábjartan
daginn.
„En það var maður sem gjörði það,
drengir mínir,” sagði Donald, „það var
maður!”
J(óhann) Magnús Bjarnason (1866-1945) var
fæddur í Meðalnesi í Fellum í Norður-Múlasýslu.
Fluttist til Kanada 1875. Kennari og rithöfundur í
Manitoba lengst af. Meðal skáldsagna hans eru Ei-
ríkur Hansson og Brasilíufararnir . Q
Veðursíminn *|gr VEBURSTOFA
902 0600 W íslahds
símatorg í 2. verðflokki, 16,60 kr. á mínútu (m. vsk)
Veður á sjó
Nýjustu veðurathuganir: Veljið 6
Sjóveðurspá: Veljið 2
Veðursíminn er gerður fyrir tónval. Þeir sjómenn,
sem eru með gamla NMT-síma og geta ekki notað
tónval, geta nálgast sjóveðurspá með því að
hringja beint í 902 0602
Veður á landi
Veðurhorfur næsta
sólarhring og nýjustu
veðurathuganir fyrir
einstök spásvæði:
Veljið 8 og síðan
tölu svæðisins.
Til að velja annað
spásvæði: Veljið * og
tölu nýja svæðisins.
Veðurupplýsingar í GSM síma
Sjá nánar á vefsíðu Veðurstofunnar, WWW.Vedur.ÍS
, ^ t Ha*6u1»rd /
, Jjjíj I Nbró-iit»>4 j jL+iM\*r<á
•>w . ; •• -i. | V)
(.Mlífo), •
3»
21
22 .
™Ö.1.
aafjitin-d
64 - Sjómannablaðið Víkingur