Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2007, Síða 8

Náttúrufræðingurinn - 2007, Síða 8
Náttúrufræðingurinn vistgerðasnið 200 x 2 m, til að sann- prófa flokkunina (1. tafla). Sniðin voru valin út frá stýrðu flokkuninni með skilyrtri slembiaðferð (e. strati- fied random sampling)29 þannig að hlutfall sniða í hverri vistgerð færi eftir heildarflatarmáli hennar í flokkuninni. Ekki voru lögð út snið í melagambravist, sandmýravist, rekjuvist og melhólum, sem höfðu litla útbreiðslu. Upphafspunktur hvers sniðs var forvalinn en stefnan ákveðin á vettvangi. A hverju sniði voru tegundir háplantna skráðar og fjórum algengustu raðað eftir þekju, umhverfi lýst og vistgerð ákvörðuð út frá þessum upplýsingum. Þá var hnattstaða hvers sniðs skráð með GPS-handtæki og yfirlitsmynd tek- in við upphafs- og endapunkt. Til þess að kanna nánar í hvaða vistgerð nýju sniðin ættu að flokkast var gerð sérstök DCA-hnitun'2 en við hana var hnitunarforritinu CANOCO beitt.33 Þar var fyrri hnitun vistgerðasniða látin mynda fastan grurrn en nýju sniðin greind með sem hlutlausar breytur (e. passive variables) og þeim því skipað inn í fyrra rúm sem fundið hafði verið. Einungis var tekið tillit til háplöntu- tegunda við þessa greiningu. Með hnitunargreiningunni fékkst stað- setning allra sniða á fjórum hnitunar- a ásum. Á hverjum ási voru síðan fundin meðalhnit fyrir hverja vist- gerð úr fyrri rannsóknum. Ut frá þessum hnitum voru nýju sniðin síð- an flokkuð í vistgerðir. Greining sniðs var talin rétt ef frávik frá meðaltalsgildi vistgerðarinnar var innan við 0,4 einingar á öllum ásum, en eining á hverjum hnitunarási er meðalstaðalfrávikseining allra teg- unda í gagnasafninu. Kæmu fleirí en ein vistgerð til álita í þessum útreikn- ingum var vettvangsgreining látin ráða. Nákvæmnimat Eftir endanlega röðun nýju sniðanna í vistgerðir voru þau borin saman við flokkunina og þannig útbúnar töflur (e. error matrix) sem sýna hvemig sniðin raðast í vistgerðir á kortunum. Þetta var einnig gert fyrir gróðurfélagakortið. Annars vegar sést hversu hátt hlutfall sannprófun- arsniða lendir í réttri vistgerð (e. producer's accuracy) og hins vegar er kannað hvemig heildarútbreiðsla vistgerða í flokkuninni kemur heim og saman við sannprófunarsniðin (e. user's accuracy).29 Þannig geta sann- prófunarsnið tiltekinnar vistgerðar sýnt góða fylgni við hana (ná- kvæmni vistgerðar) þó svo að sann- prófunarsnið í öðrum vistgerðum b lendi líka í henni (nákvæmni út- breiðslu), en það gæti þýtt að út- breiðsla hennar væri ofmetin. Ut- koman úr töflunum var síðan athug- uð til að bera saman aðferðirnar og finna hvaða vistgerðir flokkuðust rétt og hverjar ekki. Til að kanna betur mismun á aðferðunum var gróðurfélagakortið lagt ofan á fjar- könnunarflokkunina og forritið látið reikna út skörunina með „matrix"- aðgerð. Þannig fengust upplýsingar um hversu stór hluti svæðisins flokkaðist eins með báðum aðferð- um og einnig hvernig einstakar vist- gerðir flokkuðust að öðru leyti. Með því að nota hæðarlíkan og vatnafarsgögn af svæðinu var leit- ast við að draga fram einstakar vist- gerðir, greina á milli ólíkra vist- gerða með svipað endurvarp og einnig leiðrétta augljósar villur í flokkuninni, svo sem vegna skugga. Hæðarlíkan var unnið út frá eins metra hæðarlínum (1:2.000) af Hafrahvammagljúfri og tveggja metra hæðarlínum (1:5.000) á áhrifasvæði Hálslóns. Þessar hæð- arlínur voru fengnar frá Landsvirkj- un. Annars staðar á svæðinu var hæðarlíkanið unnið út frá 5 metra hæðarlínum (1:20.000) frá Orku- stofnun. Vatnafarsþekja í mæli- kvarðanum 1:20.000 frá Orkustofn- C r 3. mynd. Leiðrétting á flokkun með vatnafarsgögnum og halla. a) Óleiðrétt mynd, skuggar í hlíðum mót norðaustri koma fram sem lágstara- og hástaraflóavist (Ijós- og dökkbleikur litur). b) Þekja með 50 m áhrifasvæði vatns lögð ofan á flokkunina (gervitunglamynd hér) ogforritið látið finna votlendi sem kemurfram í meira en 4° halla (dökkrauðir og grænir rastar). c) Leiðrétt mynd, par sem búið er að breyta votlendinu í giljamóavist og lyngmóavist út frá niðurstöðum vistgerðarannsókna (Sigurður H. Magnússon o.fl., óbirt gögn) og upplýsingum á gróðurkorti. - Corrections of classification made by using slope and hydrological data. 76

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.