Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2007, Qupperneq 18

Náttúrufræðingurinn - 2007, Qupperneq 18
Náttúrufræðingurinn 1. mynd. Kort af Vestfjörðum sem sýnir fundarstaði þeirra stemgervinga sem notaðir voru í þessari rannsókn og einnig þá staði þar sem M.A. Akhmetiev o.fl.8 og Leifur A. Símonar- son o.fl.1314 tóku frjósýni. Selárdalur, Ófæruvík, Botn, Breiðhilla og Gil tilheyra Selárdals- Botns setlagasyrpunni (15 milljón ára). Dufansdalur, Ketilseyri og Lambadalur tilheyra Dufansdals-Ketilseyrar setlagasyrpunni (13,5 milljón ára). -Map of northwestern lceland showing sites with macrofossils used in the present study and origin of palynological satnp- les taken by Akhmetiev et al.‘ and Símonarson et al.1314 Selárdalur, Ófæruvík, Botn, Breið- hilla and Gil belong to the Selárdalur-Botn Formation (15 Ma). Dufansdalur, Ketilseyri and Lambadalur belong to the Dufansdalur-Ketilseyri Formation (13.5 Ma). A. Símonarsyni/7 M. A. Akhmetiev o.fl.,8 Friðgeiri Grímssyni9 og T. Denk o.fl.10 Aftur á móti eru stein- gervingar úr elstu setlagasyrpum landsins, Selárdals-Botns setlaga- syrpunni (15 milljón ára) og Dufansdals-Ketilseyrar setlagasyrp- unni (13,5 milljón ára) minna þekkt- ir, en helstu rannsóknir á þeim voru gerðar af Jóhannesi Askelssyni1112 um miðja síðustu öld og Leifi A. Símonarsyni o.fl.1314 í upphafi þess- arar. Friðgeir Grímsson og T. Denk15 lýstu nýlega nýrri tegund beykis frá Selárdal og Friðgeir Grímsson og Leifur A. Símonarson16 rannsökuðu útbreiðslu þess út frá steingerðum laufblöðum, aldinum og fræjum frá Selárdal í Arnarfirði, Botni í Súg- andafirði og Ketilseyri í Dýrafirði, og einnig var stuðst við frjógrein- ingar frá helstu setlagaopnum á Vestfjörðum.8 Fáum gerðum laufblaða frá Selár- dal (1. tafla) hefur verið lýst til þessa og þau flest talin til beykis, vínviðar (Vitis) og humalbeykis (Ostrya). Beykiblöðum hefur einnig verið lýst úr setlögum við Ketilseyri í Dýrafirði, en aðeins hefur verið greint frá greinum með barrnálum frá Botni (2. mynd) og þær taldar tilheyra kínarauðviði (Metasequoia). I þessari grein er fjallað um stein- gerð laufblöð, barrnálar, aldin, fræ og köngla frá Selárdal í Arnarfirði og Botni í Súgandafirði og áður- nefndar plöntuleifar endurskoðað- ar (1. tafla). Niðurstöður rannsókna á handsýnum voru bornar saman við frjógreiningar úr setlögunum frá Selárdal, Ófæruvík, Botni, Breiðhillu og Gili, en þessir fundar- staðir tilheyra allir Selárdals-Botns setlagasyrpunni (15 milljón ára). A sama hátt voru handsýni frá Ketils- eyri rannsökuð og borin saman við frjógreiningar úr setlögum í Lambadal, en báðir fundarstaðir til- heyra Dufansdals-Ketilseyrar set- lagasyrpunni (13,5 milljón ára). Rannsókn okkar leiðir í ljós enn fleiri tegundir en fundist hafa áður í fyrrnefndum setlögum (2. tafla). Plöntusamfélögin úr 15 milljón ára gömlum setlögum í Selárdal og Botni eru borin saman og bent á lík- legustu þróun íslensku flórunnar frá því fyrir 15 milljón árum og þar til fyrir 13,5 milljón árum. Að lok- um eru dregnar ályktanir um lofts- lag þessa tíma út frá plöntuleifun- um. JARÐLÖG OG STEINGERVINGAR Selárdals-Botns setlagsyrpan (15 milljón ára) kemur fram í norð- vestri á útskögum Vestfjarða (1. mynd). Setlögin eru aðgengileg á mörgum stöðum, meðal annars í Selárdal í Arnarfirði, Ófæruvík við minni Dýrafjarðar, Botni í Súg- andafirði og Breiðhillu og Gili í Bol- ungarvík. í Selárdal í Arnarfirði eru setlögin með steingervingunum yfir 20 metra þykk og einkennast af gosrænum uppruna. Þau eru flest úr grófkorna gjóskuríkum sand- steini. Mikið er af gleri í flestum setlögunum og sumar setlagaein- ingar hafa áberandi mikið af ljós- leitum vikri. Einnig má þarna finna margs konar sandsteinslög og völu- berg. Setlögin gefa til kynna upp- söfnun sets á frekar háttliggjandi svæði, hugsanlega í fjallshlíð í ná- grenni eldkeilu; það sem styður 86
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.