Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2007, Page 32

Náttúrufræðingurinn - 2007, Page 32
Náttúrufræðingurinn 10. mynd. Mið-Atlantshafshryggurinn liggur í gegnum ísland, Reykjaneshryggurinn við suðvesturströndina og Kolbeinseyjarhryggurinn úti fyrir Norðurlandi. Grænlands- Skotlands þverhryggurinn nær yfir mestan hluta sjávarbotnsins milli meginlandanna. Basaltmyndanir nýlífsaldar eru sýndar með dökkgráum lit. Sýndar eru jafnaldurslínur (anómalíur) og aldur sjávarbotns í kringum landið. (Byggt á Tahvani og Eldholm 1977"; Larsen 198053 og Sigurði Steinþórssyni 198155). - The Mid-Atlantic Ridge crosses Iceland, with the Reykjanes Ridge on the south-western side and the Kolbeinsey Ridge on the northern side. The Greenland-Scotland Transverse Ridge reaches over most ofthe oce- anfloor. Tertiary terrestrial basalt formations are indicated with darkgrey colour. Anom- alies and relative age of the ocean floor are shown (modified after Talwani and Elholm 1977"; Larsen 198053; Steinþórsson 198155). halda elstu plöntuleifar landsins eru um 15 milljón ára.26-27-28’29 Al- mennt er talið að ísland hafi þegar verið orðið eyja þegar þessi setlög settust til, en lítið er vitað um hvort aðrir hlutar þverhryggjarins hafi þá verið ofansjávar og, ef svo var, hversu langt þeir voru frá íslandi. Flestar tegundir plantna, sem borin hafa verið kennsl á úr elstu setlög- um landsins, gefa ekki til kynna eig- inlegt upprunaland tegundanna (Norður-Ameríka/Grænland eða Færeyjar/Evrópa, 2. tafla) heldur tilheyra plönturnar flóru sem hafði mikla útbreiðslu á norðurhveli jarð- ar á fyrri hluta og um miðbik míósentíma. Má þar nefna tegundir ættkvísla sem tilheyra fenjakýprus- ættinni, hjartartré, magnólíu, plat- anvið, álm, topp og lyngrós,30-31 og gætu plönturnar því hafa komist til Islands bæði úr vestri og austri. Það vekur athygli að margar ættkvísl- anna (Glyptostrobus, Cercidiphyllum, Aesculus, Platanus, Uhttus, Magnolia) voru áberandi í „Brito-Arctic Igneous Province (BIP) flórunum", en þær eru að minnsta kosti 20 milljón árum eldri en elstu íslensku plöntusamfélögin.32,33'34'35 Tegundirn- ar sem finnast í íslenskum míósen- setlögum eru frábrugðnar tegund- um í áðurnefndum BlP-flórum, nema evrópuvatnafuran virðist sú sama. Plöntuleifar úr íslenskum set- lögum benda eindregið til dreifing- ar og flutnings plantna yfir frum- ísland löngu eftir að leifar BlP-flór- anna grófust í setlög. Hversu lengi þessi dreifing og flutningur stóð yfir og hvenær þessar flutnings- leiðir urðu ófærar plöntum með stuttan dreifiradíus er ekki alveg ljóst.36'37,38'39'40'41 Ef gert er ráð fyrir því að hluti af Grænlands-Skotlands þverhryggnum hafi verið ofansjáv- ar löngu fyrir myndun elstu setlaga landsins, þá er hugsanlegt að flóran eða hluti hennar hafi numið hér land fyrir þann tíma og þróast á frum-íslandi áður en setlögin í Sel- árdal og Botni söfnuðust fyrir. Fornlandfræði OG DREIFILEIÐIR PLANTNA Möttulstrókurinn undir Islandi, ná- lægt flekaskilunum í Norður-Atl- antshafi, er talinn frumorsök þess að mikið af möttulefni streymir upp og safnast á hryggjarásinn.42 Því er uppstreymi basaltkviku meira hér á landi en á öðrum nálægum svæðum og jarðskorpan undir íslandi því þykkari en ella. Samfara miklu upp- streymi möttulefnis á flekaskilunum rekur flekana í sundur og þannig flytjast storkubergsmyndanir frá flekaskilunum (10. mynd). Við þetta hægfara ferli myndast þverhryggur. Möttulstrókurinn við flekaskilin er talinn hafa flutt með sér til yfirborðs storkuberg sem í fyrstu myndaði landtengingu á milli Norður-Amer- íku og Evrópu um Islandssvæðið þegar meginlöndin byrjaði að reka í sundur í lok krítartímabils og upp- hafi tertíertímabils.28,43 Þverhryggur- inn sem myndaði landbrúna er þekktur sem Grænlands-Skotlands þverhryggurinn. I byrjun nýlífsald- ar voru meginlöndin það nálægt hvort öðru að heiti reiturinn hélt uppi landsvæðinu (landbrúnni) á milli þeirra, en eftir því sem leið á nýlífsöld kólnuðu útjaðrar hryggjar- ins og sigu jafnt og þétt í sjó. Ekki eru allir sammála um það hvernig og hvenær þetta gerðist, en sumir telja að um miðbik míósentíma hafi einhverjir hlutar þverhryggjarins (utan Islands) enn verið ofansjáv- ar 4344 pessi þverhryggur náði yfir svæðið þar sem Island er nú og lík- lega hafa þessi landsvæði verið meira og minna þakin gróðri. Mikið magn frjókorna og gróa í setkjörn- um frá ólígósen- og míósentímum, sem fengust við djúphafsboranir (ODP) meðfram norðurhlið Græn- lands-Skotlands þverhryggjarins, styðja kenningu um gróður á sjálf- um þverhryggnum.45

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.