Náttúrufræðingurinn - 2007, Side 42
Náttúrufræðingurinn
Skilgreiningaraöferö - Detinition method Reykjavík Byggt á meðalfrjóári 18 sumra - (basedon 18-yearaverageonFig. 1) Akureyri Byggt á meöalfrjóári 8 sumra - (based on 8-year average on Fig. 1)
Upphafið - startdate Lokin - tinish date Lengd - length Upphafið - startdate Lokin - finish date Lengd - length
A Emberlin o.fl. 2000 9. júlí 24. ágúst 47 15. júlf 27. ágúst 44
B Nilsson og Persson 1981 30. júní 26. ágúst 58 2. júlí 2. september 63
C Lejoly-Gabriel 1978 9. júlf 21. ágúst 44 15. júlí 24. ágúst 40
D Þröskuldur — 1 % 29. júnf 30. ágúst 63 29. júní 4. september 68
E Þröskuldur — frjótalan 10 1. júlí 30. ágúst 61 5. júlf 4. september 62
F Samfella 8. júnf 18. september 93 7. júní 23. september 99
2. tafla. Samanburður á frjótíma grasa í Reykjavík (meðaltal 18 ára) og á Akureyrí (meðaltal 8 ára)
efiir skilgreiningunum sex (sjá I. töflu). - Comparison of the grass pollen seasons in Reykjavík
(mean of 18 years) and Akureyrí ( mean of 8 years) using six different defmitíons (see Table I).
grasfrjó hafa mælst samfellt dag
hvern í a.m.k. viku þá sé frjótími
grasa hafinn (skilgreining F í 1.
töflu). Þessi skilgreining er einföld
og hefur þann kost að hægt er að
segja til um upphaf frjótímans strax
í annarri viku tímabilsins. Hún gef-
ur einnig einstaklingum, sem
haldnir eru ofnæmi fyrir grasfrjó-
um, ráðrúm til að byrja að taka inn
ofnæmislyf. Mörg lyf eru þess eðlis
að þau fara ekki að virka fyrr en að
nokkrum tíma liðnum. Þetta gildir
að minnsta kosti um þá sjúklinga
sem ekki eru ofurnæmir á grasfrjó
því að aðdragandinn að því að frjó-
tölur grasa nái tveimur stöfum get-
ur verið allt frá þremur dögum upp
í 26 hér á landi. í Reykjavík hafa lið-
ið að meðaltali 12,6 dagar frá því að
grasfrjó mælast samfellt þar til frjó-
tala nær 10, aðeins þrisvar leið
minna en vika og fimmtán sinnum
tók það meira en átta daga að
frjótalan næði tveggja stafa tölu.
Þannig að oftast tekur það meira en
viku. A Akureyri líða hins vegar
16,5 dagar að jafnaði frá því grasfrjó
mælast daglega þar til frjótala nær
10. Ástæðan fyrir þessum mun gæti
legið í ólíkum aðstæðum við frjó-
gildrurnar. Þess má geta að svipuð
skilgreining á upphafi frjótíma
grasa hefur verið notuð um langt
skeið í Sviss.8
Kosturinn við tvær síðast töldu
aðferðirnar (þröskuldsgildi og sam-
felluna) er sá að ekki þarf að bíða
fram á haustið með að úrskurða um
upphaf frjótíma grasa það árið.
Þvert á móti liggur það þegar best
lætur fyrir strax daginn eftir að frjó-
tala nær þröskuldsgildinu eða í
annarri viku frjótímans miðað við
að frjógildran sé tæmd vikulega.
Upphaf frjótíma grasa
Reykjavík. Þegar aðferðunum sem
byggjast á hundraðshluta af heild-
arfrjómagni (A-C) er beitt á meðal-
frjótölur grasa í Reykjavík (3.
mynd) kemur í ljós að upphafið
verður það sama fyrir A og C (2.
tafla). í meðalfrjóári byrjar grastím-
inn 9. júlí, en þegar hvert ár er skoð-
að fyrir sig fellur það á tímabilið 20.
90-
Skilgreining á fijótíma
A Emberlin
...... B Nilsson og Persson
...... C Lejoly-Gabriel
D Þröskuldur-1%
E Þröskuldur - fijótala 10
F Samfella
______________________L
Reykjavík 1988-2005
4*
15. sept
3. mynd. Frjótími grasa sýndur sem mislöng lárétt strik á súluriti sem sýnir frjótölur meðalárs reiknaðar út frá mælingum 18 ára í
Reykjavík. Bókstafir A-F vísa til skilgreininga áfrjótíma, sbr. 1. töflu. - The grass pollen season is shown as a thick line on a histogram
ofpollen counts based on 18 years of pollen monitoring in Reykjavík, A-F refers to the different definitions, see Table 1.
110
A