Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2007, Page 49

Náttúrufræðingurinn - 2007, Page 49
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 3. mynd. Jarðvegssnið sem mælt var á Álftaversafrétti og sýnum safnað lir. a) Umhverfi Atleyjarsniðs; örin bendir á jarðvegsbarð þar sem um helmingur þeirra gjóskulaga semfjallað er um fannst. í bakgrunni sést til Mýrdalsjökuls og Öldufells. b) Atleyjarsnið; þykkt jarðvegs og gjóskidaga er um 4 metrar (svört ör). Sniðið var mælt í 4 opnum en opnur 1 og 2 má sjá sitthvoru megin við örina. c) Nærmynd afhluta opnu 1. AT-19 er um 1880 ára gamalt gjóskulag og AT-25 er um 2260 ára. Mælikvarðinn er um 70 cm á lengd. - The surroundings ofthe composite soil section that was measured and sampled during this study. a) The surroundings ofAtley, one of three outcrops used. The arrow points to the location where about half of the tephra layers were sampled. In the background is the Mýrdalsjökull ice cap that covers the Katla volcano and the mount Öldufell. b) Atley outcrop where the total soil thickness (black arrow) is about 4 meters. The section was measured in 4 parts and two ofthem can be seen on each side ofthe black arrow. c) Close-up of part 1 in Atley. Tephra layer AT-19 is approximately 1880 years old whereas AT-25 is 2260 years old. The scale is about 70 cm. Ljósm./Photos: Bergrún Arna Óladóttir. stöðvist í grunnstæðu kvikuhólfi5 þar sem hún þróast er hluti hennar kristallast. Nýrri rannsóknir hafa leitt í ljós mun flóknari fyrirbæri en aðfærslu- kerfi þeirra Eatons og Murata og má þar nefna Kröflu þar sem fjögur lítil kvikuhólf virðast tengjast.6 Túlkun jarðeðlisfræðilegra gagna er þó á stundum ekki einhlít, eins og sjá má á mismundandi tillögum um eðli aðfærslukerfis Kilauea-eld- stöðvarinnar á Havaí. Þar héldu Fiske og Kinoshita7 því fram að að- færslukerfið væri uppbyggt af sam- tengdum göngum og sillum en Yang og félagar segja það vera eitt blöðrulaga hólf.” Jarðskjálftafræðilegar rannsóknir á innviðum jarðskorpunnar undir Mýrdalsjökli sýna breytilegan hraða jarðskjálftabylgna sem skýra má með tilvist kvikuhólfs, um 5 km í þvermál með botn á ~3 km dýpi.’ Jafnframt hefur verið bent á að þessi gögn megi túlka sem öskjufyllingu, sem þó er talin ólíklegri skýring.1' Þegar svona ber við er fróðlegt að skoða fleiri tegundir gagna, svo sem jarðefnafræðileg gögn, til þess að auka skilning á kvikuhólfum, stærð þeirra, lögun og myndun.'01112'13 Jarðefnafræðileg gögn má t.d. nota við mat á dvalartíma kviku í jarð- skorpunni, en langur dvalartími sannar viðdvöl kviku í kvikuhólfi.14 Eins má nota tímabundnar breyt- ingar á kvikusamsetningu til betri skilnings á hegðun kvikuhólfa.13 Viðfangsefni þessa greinakorns er aðalefnasamsetning basískrar gjósku úr Kötlugosum síðustu 117

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.