Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2007, Síða 58

Náttúrufræðingurinn - 2007, Síða 58
Náttúrufræðingurinn Umræður Birki getur komið snemma inn í framvindu á gróðursnauðum svæðum á íslandi911 og var sú raunin á Skeiðarársandi. Nýliðun birkisins virtist samt vera að mestu leyti háð utanaðkomandi fræregni. Lítið fannst af birkiplöntum í blóma og þær sem fundust voru allar nema tvær með færri en sex rekla. Líklegt er að lítill hluti birki- stofnsins á Skeiðarársandi hafi náð lágmarksstærð eða aldri til að blóm- gast (5. mynd).11'17 Því má gera ráð fyrir því að plöntur á sandinum séu allar af fyrstu kynslóð landnema. Aldur birkiplantna sem fundust á rannsóknarsvæðunum á Skeiðarár- sandi bendir til þess að landnám birkis hafi byrjað þar um og upp úr 1980, þá um miðbik sandsins en nokkru seinna á austari og vestari svæðunum (8. mynd). Þar sem aldur birkiplantna var að mestu leyti metinn út frá þvermáli stofns má gera ráð fyrir um ±2 ára skekkju í aldursgreiningargögnunum. En hvers vegna hófst landnám birkis ekki fyrr? Gögn um fræ frá Skafta- felli benda ekki til þess að skortur hafi verið á fjölda spírunarhæfra fræja sem borist gátu á sandinn fyrir 1980“ og því ólíklegt að mis- munur í fræframleiðslu útskýri hvers vegna landnám birkis hófst ekki fyrr. Fræ hafa líklega borist inn á svæðið en einhverjir aðrir þættir hindrað landnám birkisins. Ef fræframboð ræður mestu um land- námið hefði mátt búast við fallanda í landnámi og fjölda plantna frá fræuppsprettu, þ.e. að mestur þéttleiki og elstu trén væru austast á sandinum næst Skaftafelli. Ekki er þó hægt að útiloka að eldra birki nær Skeiðará hafi þurrkast út í jökulhlaupum. Beit er annar þáttur sem getur haft áhrif á landnám og vöxt birkis. Þótt ekki væri marktækt samband milli ummerkja beitar og hæðar, eða þéttleika birkis, voru vísbend- ingar í gögnunum um að beit hafi hamlandi áhrif á vöxt og nýliðun birkis. Ef miðsvæðin tvö, sem eru rétt hjá hvort öðru, eru skoðuð sést að þrátt fyrir svipaða aldursdreif- ingu og hæð var mikill munur á þéttleika birkis og beitarálagi milli svæða. Á nyrðra svæðinu, þar sem beitarálagið var töluvert minna en á syðra svæðinu, (7. mynd) var þéttleiki birkis þrettán sinnum meiri (3. mynd). Þetta er í samræmi við rannsóknir sem sýna að beit hægir á nýliðun birkis þar sem dýrin leita helst í ungar plöntur og nýja sprota.6 Þó svo að beit kunni að hafa hamlandi áhrif á nýliðun og vöxt birkisins er ólíklegt að hún hafi haft mikil áhrif á það hvenær land- 4. mynd. Birki á SkeiÖarársandi var oftast lágvaxið. - The mountain birch plants on Skciðarársandur were generally low in stature. námið hófst þar sem fjöldi sauðfjár hefur verið stöðugur á sandinum a.m.k. seinustu 30 ár (Búnaðarsam- band Suðurlands, munnleg heim- ild). Þar til jökullinn hopaði fyrir aftan jökulgarða sína um miðja 20. öldina flæddu jökulhlaup yfir rann- sóknarsvæðin. Rask vegna þessa hefur verið mikið og gert það að verkum að birkikímplöntur sem 25 E20 u o 15 & £ « 10 <o 0) MN MS V 5. rnynd. Hæð birkis á rannsóknarsvæðunum fjórum á Skeiðarársandi sumarið 2004. Súlurnar sýna meðaltöl og lóðréttu strikin staðalskekkju meðaltalsins. Svæðum er raðað eftir fjarlægð frá Skaftafelli þaðan sem áætla má að mesta fræregnið komi. A er austasta svæðið, MN mið-norðursvæðið, MS mið-suðursvæðið og V vestasta svæðið. - Mean height ofmountain birch ±SE at four study sites on Skeiðarársandu in 2004. The order of the study sites is east (A), mid-north (MN), mid-south (MS) and west (V) from left to right, beginning with the site closest to Skaftafell where most ofthe seedrain comesfrom. 126

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.