Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2007, Page 62

Náttúrufræðingurinn - 2007, Page 62
Náttúrufræðingurinn Örnólfur Thorlacius Handleiðsla um HANDSJÓNAUKA Menn hafa lengi slípað lins- ur og spegla til þess að greina betur það sem smátt er ellegar fjarlægt. Hér verða, að loknu stuttu og ófullkomnu sögulegu yfirliti, kynntir handhæg- ir sjónaukar sem menn nota til hins síðarnefnda, að nálgast það sem greinist illa eða ekki úr fjarlægð með berum augum. Mikið úrval er af handsjónaukum til ýmissa nota og vonandi verður pistillinn til að hjálpa einhverjum lesendum við val á tækjum sem henta þörfum þeirra og gjaldþoli. Ekki verður fjallað um stóra og flókna sjónauka, með speglum eða linsum, sem beitt er meðal annars til að kanna himingeiminn, ýmist í lit- rófi sem augu okkar greina eða handan þess. FóRN REYNSLA AF LJÓSBROTI Allt frá því á þriðja árþúsundi f.Kr. slípuðu Egyptar linsur úr tæru kvarsi (bergkristal) og settu í augu á múmíum og myndastyttum. Þeir virðast hafa gert sér grein fyrir ljós- brotsverkun augasteinsins, en ekki 2. mynd. Visbylinsurnar, sem fundust í um 1000 ára gamalli gröf á Gotlandi, eru úr bergkristal og svo vandlega slípaðar að menn telja að pær hljóti að hafa verið renndar í einhvers konar rennibekk. eru heimildir fyrir því að þeir hafi fært sér þessa þekkingu í nyt við gerð sjóntækja. Um 400 f.Kr. lýsir kínverskur heimspekingur, Mozi, því hvernig þjappa megi geislum saman með holspeglum. Og um og fyrir upphaf tímatals okkar lýstu Rómverjar stækkunaráhrifum kúlu- laga gleríláts sem fyllt var vatni. Nýlega fundust í um 1000 ára gamalli víkingagröf á Gotlandi slíp- aðar linsur úr bergkristal (1. mynd). Slípunin var svo vönduð að leita þarf fram á 20. öld til að finna jafn- gott handverk. Um notagildi þess- ara glerja vita menn ekki; sum virð- ast hafa verið skartmunir en önnur trúlega til nytja, kannski sem stækk- unargler eða jafnvel hlutar af sjón- aukum. Ekki er ljóst hvort þessar „vis- bylinsur" voru heimasmíðaðar eða aðfengnar. Víkingar stunduðu við- skipti alla götu til Konstantínópel og í það minnsta hefur efnið verið innflutt þar sem bergkristall finnst ekki á Gotlandi. Arabískur vísindamaður, Ibn al- Haytham, betur þekktur á Vestur- löndum sem Alhazen, er af mörg- um talinn „faðir ljóseðlisfræðinnar" (2. mynd). Á árunum 1015-1021 skráði hann mikið rit í sjö bindum, Kitab al-Manazir (Bókin um ljós- fræðina), þar sem hann leiddi fram ýmsar kennisetningar um eðli ljóss og sjónar. Ritið kom út í latneskri þýðingu 1270, Optica thesaurus Alhazeni, og hafði mikil áhrif á evr- ópska fræðimenn. FYRSTU SJÓNAUKARNIR Árið 1608 sótti hollenskur gler- augnasmiður, Hans Lippershey, um einkaleyfi á sjónauka. Þar sem ýmsir aðrir sýsluðu um þetta leyti við sama viðfangsefni var umsókn 130 Náttúrufræðingurinn 75 (2-4), bls. 130-134, 2007 J

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.