Náttúrufræðingurinn - 2003, Page 8
Náttúrufræðingurinn
6. mi/nd. Lnndris á Austmannsbungu mælt með GPS-mælingum. Hæðarbreytingar eru
miðaðar við fastan punkt við Hamragarða, vestan Eyjafjallajökuls. - Measured uplift of
Austmannsbunga as a function of time. The reference point for the displacements is at
Hamraendnr, west of Eyjnfjnllnjökull, well outside the affected area.
stafi af kvikusöfnun. Kvikustreymið
hefur fram til þessa verið hægt en
stöðugt. Þenslan mælist eingöngu á
punktum nálægt jöklinum eða á jök-
ulskerjum nálægt miðju rissvæðisins
(4. og 5. mynd). Það bendir til þess
að þrýstingsbreytingarnar séu á litlu
dýpi. Hreyfingarnar eru allar upp og
í átt frá ákveðnum punkti innan
öskjunnar, sem sýnir að þrýstingur
fer vaxandi og að aukningin er und-
ir öskjunni.
Innstreymi kvikunnar jókst að lík-
indum vorið 1999. Þessi tímasetning
er ekki alveg örugg því að engar
GPS-mælingar voru gerðar frá 1994
til 1999. Alyktunin er því dregin með
því að lengja rislínuritið afturábak í
tíma og gera ráð fyrir að rishraðinn
hafi verið óbreyttur frá að risið hófst
(6. mynd). Hlaup kom undan Sól-
heimajökli 17. júlí 1999 og stafaði
sennilega af smágosi undir jöklinum
líkt og 1955 (sjá t.d. Sturkell o.fl.
2003). Þetta var fyrsta merki um að
eldstöðin væri farin að bæra á sér.
Nú er fylgst með landrisi og þenslu
svo til jafnóðum og niðurstöður
uppfærðar daglega á vefsíðum Veð-
urstofunnar. Til þess eru notuð GPS-
landmælingatæki sem komið hefur
verið fyrir á tveimur stöðum við
jökuljaðarinn, á Sólheimaheiði og
við Láguhvola (1. mynd).
jARÐS KjÁLFTAR
Veðurstofa Islands rekur mjög full-
komið net jarðskjálftamæla um-
hverfis Kötlu (1. mynd). Með þessu
neti eru upptök jarðskjálfta ákvörð-
7. mynd. Nýr mælipunktur var settur við jaðar jökulsins, eins nálægt skjálftaþyrpingunni við Goðabungu og unnt var, til þess að
fylgjast með hugsanlegum jarðskorpuhreyfingum í tengslum við jarðskjálftana. Goðabunga er í baksýn. - A new survey point was
installed at the glacier edge close to the cluster of epicentres at Goðabunga to capture the possible crustal deformation associated with
the seismicity. Goðabunga is in the background. Ljósm./Photo: Erik Sturkell.
84