Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2003, Blaðsíða 46

Náttúrufræðingurinn - 2003, Blaðsíða 46
Náttúrufræðingurinn 17. ágúst 1996. Upptök Skeiðarár þar sem hún kemur undan suðausturhorni Skeiðarárjökuls og rennur fyrir mynni Morsárdals. Handan ár er jökuljaðarinn svartur af sandi. Öræfajökull íbaksýn. Ljósmynd Oddur Sigurðsson. mynni Morsárdals en fór í auðn fyr- ir ágang jökuls og vatna snemma á öldum. I Lómagnúpsmáldaga er þess getið að Gyrðir biskup hafi lagt frá Jökulfelli eina kú og tólf ær til Lómagnúps (Islenskt fornbréfasafn IV, bls. 199). Gyrðir var kosinn bisk- up 1350 og var til 1361, svo að ætla má að á þeim árum hafi þær ham- farir orðið að Jökulfellsbóndi hafi ekki treyst sér hafa kirkjuna lengur. (Afgjaldið til prestsins á Rauðalæk mun hafa numið nálægt hestverði.) I hinni ágætu bók „Vötnin stríð" getur Sigurður Þórarinsson (1974) þess að það að hálfkirkja var í Jökul- felli 1343 sýni að fram á þann tíma hafi ekki verið stórhlaup á austan- verðum Skeiðarársandi. Ekki er vit- að til að neinn hér á nálægum slóð- um hafi lýst því sem þá gerðist, en raunar gæti það verið komið í glatkistuna gaflalausu þó til hefði verið. DEYJA fuglar í LOFTI En norður á Þingeyrum sat Arn- grímur ábóti við að semja sögu Guð- mundar biskups Arasonar, sennilega eftir 1350, en ábótinn deyr 1361. Hann samdi ritið á latínu og mun hafa ætlað það erlendum prelátum sem hann vonaði að stæðu að því að gera Guðmund að dýrlingi. En það voru íslendingar sem svo lásu bók- ina eftir að hún var þýdd. í henni mun koma fram fyrsta heimild um kólnandi veðurfar og stórkostlegt jökulhlaup, en þar segir: „Á sjánum liggja þeir hafísar, at með sínum ofvægilegum vexti taka þeir at fylla norðurhöfin, en yfir háfjöll landsins svo óbræðiligir jöklar með yfir- vættis hæð og vídd, at þeim mun ótrúligt þykkja, sem fjærri eru fæddir. Undan þeim fjalljöklum fellr með atburð stríðr straumr með frábærum flaum og fúlasta fnyk, svo að þar af deyja fuglar í lofti en menn á jörðu eður kvikvendi." (Saga Guðmundar góða.) Varla fer milli mála að þarna er ver- ið að lýsa stóru Skeiðarárhlaupi. Þarna er í fyrsta sinn getið um fugla- dauða af völdum hlaups, en síðan hefur það a.m.k. tvisvar komið fyrir svo víst sé í Skeiðarárhlaupi (1861 og 1954) (Sigurður Þórarinsson 1974), en ekki svo vitað sé þó hlaup hafi komið frá jökli á öðrum stöðum. Ótrúlegra er að manndauðinn sem Arngrímur nefnir hafi stafað af sömu ástæðu, en heyrt mun hann hafa að manntjón hafi orðið vegna hlaupsins. Sigurður Þórarinsson tel- ur líklegt að eldgos, sem getið er um 1332, hafi verið í Grímsvötnum, en ekki hefur það valdið gerðum Gyrð- is, enda óvíst hversu rniklu hlaupi það hefði valdið þó komið hafi. Árið 1394 er Flateyjarannáll saminn, en hann segir Knappafellsjökul (þ.e. Öræfajökul) hafa gosið árið 1350. Nú er það víst að gosið mikla í Ör- æfajökli varð 1362 (Sigurður Þórar- insson 1958), en vel kæmi heim að Gyrðir biskup hefði gert ráðstafanir vegna náttúruhamfara sem orðið hefðu 1350, árið sem hann fór utan til að fá biskupsvígslu. Öræfajökull hefur þá eins og nú verið svipmestur allra fjalla og við hann hafa flestir kannast. Það hefur því verið nokkur hætta á að honum væru eignuð eld- gos í nágrenni hans og svo mun hafa farið fyrir höfundi Flateyjarannáls. Þetta gos, árið 1350, getur hafa orðið einhvers staðar þar sem hlaupvatn 122
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.