Náttúrufræðingurinn - 2003, Qupperneq 9
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
uð sjálfvirkt innan fárra mínútna frá
skjálftunum. Stærð þeirra er einnig
mæld. Niðurstöðurnar birtast nán-
ast jafnóðum á vefsíðu Veðurstof-
unnar (www.vedur.is).
Langflestir skjálftar á Kötlu-
svæðinu um þessar mundir eiga
upptök vestan Kötluöskjunnar, við
Goðabungu. Þessir skjálftar finnast
yfirleitt ekki í byggð. Þetta á einnig
við um skjálftana sem stundum
verða innan öskjunnar. Staðsetning
skjálftanna vekur nokkra umhugs-
un því hún virðist ekki í samræmi
við stað rismiðjunnar. Aflögunin
sem veldur skjálftunum virðist
vera mjög staðbundin því hún
kemur ekki fram á neinum aflög-
unarmælingum sem gerðar hafa
verið til þessa (GPS, hallamæling-
ar, SAR-ratsjármælingar), jafnvel
þótt upptök skjálftanna virðist
vera á litlu dýpi. Helst má geta sér
þess til að skjálftarnir standi í sam-
bandi við myndun nýs gúls úr
súrri kviku. Ef gúll myndast í jarð-
skorpunni í nágrenni kvikuhólfs-
ins þá rís hann vegna eðlisþyngd-
armismunar og ryður frá sér
jarðlögum sem ofan á liggja. Þetta
veldur stöðugri og þrálátri skjálfta-
virkni, ekki ósvipaðri og nú mælist
við Goðabungu. Þessa tilgátu er
erfitt að sanna á þessu stigi málsins
og vissulega koma aðrar skýringar
til greina. Benda má á tvö atriði
sem eru í samræmi við gúlakenn-
inguna:
1. Gúlum fylgir oft mjög stað-
bundin aflögun jarðskorpunn-
ar.
2. Skjálftaþyrpingin við Goða-
bungu hefur sömu afstöðu til
Kötluöskjunnar og fyrri gúlar á
svæðinu.
Til þess að geta betur fylgst með
jarðskorpuhreyfingum á þessum
stað hefur verið mældur nýr GPS-
punktur við jökuljaðarinn í Goða-
landi (7. mynd), rétt í útjaðri skjálfta-
þyrpingarinnar.
VERÐUR hægt að segja
FYRIR UM NÆSTA GOS?
Ef unnt á að vera að segja fyrir um
eldgos í tiltekinni eldstöð þarf að
liggja fyrir vitneskja um hegðun
hennar í tengslum við fyrri gos. Katla
hefur gosið tuttugu sinnum síðan
land byggðist (Guðrún Larsen 2000).
Jarðskjálftar fundust í Mýrdalnum á
undan nokkrum síðustu gosunum,
en aðeins fáeinum klukkustundum á
undan. Þessir skjálftar voru væntan-
lega aðeins þeir stærstu í hrinu sem
að líkindum byrjaði talsvert fyrr. Það
er því von til þess að mælar sýni
lengri aðdraganda nú.
Ef tilgátan um gúlamyndun við
Goðabungu er rétt verður að telja lík-
legt að framvinda frekari umbrota
verði með nokkuð öðrum hætti nú en
í fyrri gosum Kötlu á sögulegum
tíma. Gúll sem nálgast yfirborðið
hægt er líklegur til að valda auknum
jarðhita áður en til stórtíðinda dregur.
Smáhlaup og sprengingar gætu fylgt
slíkum jarðhita.
Katla er stórvirk eldstöð eins og sjá
má á hraunum og söndum umhverf-
is hana sem allt er hennar verk. Með
slíkan nágranna er full þörf ýtrustu
aðgætni við skipulag byggðar. Gæta
þarf að því að hegðun eldstöðvarinn-
ar getur breyst, landslag getur breyst,
hraun og jökulhlaup geta fundið sér
nýja farvegi. Fyrri reynsla gefur ekki
einhlíta forskrift að því hvernig
næsta gos muni haga sér. Fram til
þessa hefur einungis lítið rnagn
kviku safnast undir Kötluöskjunni.
Jarðskjálftavirkni heldur þó áfram og
kvikusöfnunin virðist vera stöðug.
Þessi lífsmörk eldstöðvarinnar verð-
ur að taka alvarlega í ljósi fyrri um-
brota á svæðinu.
SUMMARY
Increasing magma pressure under
Katla
The present agitated state of the Katla
volcano is expressed in three types of
phenomena commonly observed prior to
emptions:
• Increased geothermal activity foll-
owing the small, volcanically ind-
uced jökulhlaup in July 1999.
• lncreased seismicity since the
autumn of 2001. This increase is
mainly concentrated under Goða-
bunga, west of the main caldera of
Katla.
• Inflation of the caldera region
seems to have begun in 1999.
Geodetic methods such as GPS and tilt
measurements are used to follow the
magma movements under the Katla vol-
cano. Two continuously recording GPS
stations close to the southem edge of the
ice cap are used with network measurem-
ents, now concentrated on the two GPS
points on nunataks in the Mýrdalsjökull
ice cap, Enta and Austmannsbunga. Four
tilt stations are also situated around the
ice cap and are measured annually. The
horizontal component of the GPS dis-
placement shows an outward radial patt-
em, originating from the northem part of
the sub-glacial caldera. All the GPS points
show uplift between the 2000 and 2003
surveys. The continuous GPS stations
show a southward displacement compo-
nent in addition to background plate
movements. Using the displacement vect-
ors in a forward grid search for the best-
fitting Mogi point source, suggests a cen-
tre of inflation in the northem part of the
caldera at 4.9 km depth. At this stage, with
this amount of uplift, the expected tilt at
stations outside the ice cap is very small.
The rate of uplift at the Austmannsbunga
GPS point increased markedly between
the 1993-2000 measurements and the
2000-2003 measurements, from a few mm
per year to about 2 cm per year. Back-trac-
ing the 2000-2003 time series of the vert-
ical uplift of the Austmannsbunga point
suggests a start of the inflation in the ear-
ly spring of 1999. This, together with the
July 1999 jökulhlaup at Sólheimajökull,
may be taken as the first signs that magma
started to accumulate beneath Katla. The
cumulative uplift of the Austmannsbunga
point since 1993 is 7.2 cm. With the loca-
tion of the Mogi point fixed at 4.9 km
depth, this corresponds to an uplift of 12
cm directly above it. A sub-surface
magma volume increase of 0.019 km3 is
implied. Even though the 1999-2003 in-
flation is only small so far, it indicates incr-
eased magma accumulation in the roots of
85