Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2003, Síða 20

Náttúrufræðingurinn - 2003, Síða 20
Náttúmfræðingurinn 9. mynd. Haf og jarðeldur - Ránardætur og Surtur - takast á í Surtsey 1964. Tvær til prjár Ránardætur purfti til að kæfa funann í Surti. Ljósm. Sv.A.M. fáir en auk Unnsteins Stefánssonar skal hér aðeins nefndur Ingvar Em- ilsson, sem nam hafeðlisfræði í Nor- egi og útskrifaðist 1953. Ingvar fór til starfa í Suður- og Mið- Ameríku. Að geta þeirra sem á eftir komu bíður seinni tíma. Skipakostur íslenskra haf- og fiskirannsókna var fyrst eftir stríð helst varðskip, eins og „Ægir" (Gráni gamli) (6. mynd) og „María Júlía" og önnur tilfallandi skip eftir aðstæðum, og þá með misjöfnum búnaði til hafrannsókna. Þessi skip skiluðu sínu í sjórannsóknum á Is- landsmiðum á sjötta og sjöunda ára- tug tuttugustu aldar. Arið 1965 fékk Fiskideild svo b/v „Hafþór", 250 tonna togara, til fullra nota. A sama ári varð Fiskideild að Hafrann- sóknastofnuninni, sjálfstæðri stofn- un undir stjórn sjávarútvegsráðu- neytisins. Tímamót urðu svo með komu sérsmíðuðu rannsóknaskip- anna „Arna Friðrikssonar" 1967 og „Bjarna Sæmundssonar" 1970. Eftir það var unnt að stunda hafrann- sóknir í auknum mæli allan ársins hring. Verksvið rannsókna jókst þannig hröðum skrefum með nýjum mönnum og skipum eins og að lík- um lætur. Rannsóknaaðstaða í landi hafði og batnað mikið 1960 þegar Hafrannsóknastofnunin flutti úr Borgartúni í nýtt húsnæði að Skúla- götu 4 í Reykjavík. LOKAORÐ Sjórannsóknir Fiskideildar og Haf- rannóknastofnunarinnar fólust og felast enn í mælingum á hitastigi, seltu, súrefni og næringarefnum til ákvörðunar á sjógerðum og straum- um (7. mynd) og til viðmiðunar um tillífun, átumagn (8. mynd) og fisk. Síðar hafa bæst við efnamælingar í tengslum við röskun frá náttúrunnar hendi (9. mynd) og af mannavöld- um, þ.e.a.s. mengunarvanda og einnig veðurfarsbreytingar. Beinar straummælingar á hafi úti færðust einnig smám saman í vöxt, m.a. í tengslum við alþjóðaverkefni á sviði haf- og veðurfarsrannsókna. Að- stæður í hafinu við ísland og á ná- lægum hafsvæðum eru mjög þýð- ingarmiklar fyrir hnattrænar að- stæður í höfunum og veðurfar. Al- mennt hafa tengsl íslenskra sjó- rannsókna við stofnanir erlendis alla tíð verið náin innan vébanda Al- þjóðahafrannsóknaráðsins. Þar voru og eru alþjóðaverkefni skipulögð og sjórannsóknagögnum þangað skilað til varðveislu og dreifingar eftir ákveðnum reglum til allra sem áhuga hafa. Þýðing kerfisins er mik- il bæði frá sjónarmiði liðinna tíma, líðandi stundar og framtíðar. Nú á tímum er rýnt í fortíðina í þeim fá- tæklegu gögnum og frásögnum sem hafa varðveist í aldanna rás. Því skal einnig reynt að gera þeim sem á eft- ir koma kleift að rýna í fyrri tíð. Varðveita ber gögn með því hugar- fari að þau geymist í 1000 ár. Hér á undan var í stórum dráttum fjallað um sjórannsóknir og þróun þeirra á Islandsmiðum fram yfir heimsstyrjöldina síðari. Eftir stendur umfjöllun um rannsóknir síðari tíma og jafnvel í framtíðinni. Kemur þar m.a. að rannsóknum í strandsjónum 96

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.