Náttúrufræðingurinn - 2003, Side 25
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Lúpínubreiða - Lupin patch
Elsti hluti
Origin
2. mynd. Skýringarmynd af lúpínubreiðu og mæliaðferð sem notuð var í rannsókninni.
Fyrsti reitur er á viðmiðunarlandi utan breiðu en hinir liggja inn eftir henni með vax-
andi atdri lúpínunnar. - A diagram explaining the sampling method used in the study.
The first plot is in control area outside the lupin patch while the others are located in
different age and successional stages within the lupin patch.
ríkisins, Landgræðslu ríkisins, bæj-
arfélaga, bænda eða annarra aðila.
Sjö staðanna voru sunnan heiða, frá
Kvískerjum í Oræfum í austri til
Skorradals í Borgarfirði í vestri.
Norðanlands voru átta staðir, vestan
frá Varmahlíð í Skagafirði austur á
Assand í Kelduhverfi (1. mynd).
Sunnan heiða er loftslag hlýrra og
mun úrkomusamara en á norðan-
verðu landinu (1. tafla). A stöðunum
fyrir sunnan var meðalárshiti
3,2-4,6°C og ársúrkoma 900-3430
mm á tímabilinu 1961-1990. Fyrir
norðan var meðalárshiti hins vegar
1,8-3,2°C og ársúrkoma 470-820
mm (Veðurstofa Islands; 1. tafla).
Aðferðir
Alaskalúpína fjölgar sér með sjálf-
sáningu. A öðru til þriðja surnri taka
plöntur að blómstra og bera fræ.
Fræmyndun er mikil og eru fræ all-
stór og dreifast ekki langt frá móð-
urplöntum. Ungplöntur vaxa því
flestar upp í nágrenni þeirra og með
tímanum myndast samfelld breiða
sem stækkar út frá jöðrum. Lúpínan
er því að jafnaði yngst við jaðarinn
en elst inni í miðri breiðu. Ef lagt er
mælisnið inn eftir lúpínubreiðu, af
því landi sem hún sækir út á og inn
í elsta hluta breiðunnar, má afla
upplýsinga um hvaða breytingar
hafa orðið í tímans rás. Þeirri aðferð
var beitt við rannsóknirnar (2.
mynd). Mælisniðin voru mislöng
eftir því hve breiður voru stórar. Þau
stystu voru innan við 20 rnetrar en
þau lengstu yfir 100 m. A hverju
sniði voru settir niður reitir sem
mælt var í og voru þeir yfirleitt fjór-
ir að tölu. Fyrsti reiturinn var að
jafnaði urn 3-5 m utan við breiðuna,
annar reitur í sömu fjarlægð innan
við jaðar, þriðji reitur mitt á milli
jaðars og rniðju og sá fjórði í miðju
eða elsta hluta breiðu. í nokkrum til-
vikum var þar um að ræða bletti
sem lúpína hafði hörfað af. A
nokkrum stöðurn hafði lúpína full-
nurnið land sem hún breiddist urn
og voru þar allir reitir innan breiða.
Hver reitur var 8 m langur og 50 cm
breiður og var lagður þvert á sniðið.
I reitunum voru lagðir út sex smá-
reitir (50x50 cm) þar sem hæð
lúpínu var mæld, háplöntur greind-
ar og þekja þeirra ákvörðuð með
sjónmati. Heildarþekja ógróins yfir-
Þáttur Mcðaltal 1. ás 2. ás
Variable Average Axis 1 Axis 2
Umhveríi/Environmcnt:
Sýrustig jarðvegs/Soil pH 6,27 ± 0,05 0,490 -0,397
Kolefni í jarðvegi/Soil C (%) 2,40 ± 0,18 -0,497 0,598
Köfnunarefni í jarðvegi/Soil N (%) 0,18 ± 0,01 -0,617 0,446
Hæð yfir s]ó/Heiglit above sea level (m) 112,53 ± 4,80 0,219 0,004
Ársúrkoma /Mean annual precip. (ntm) 1112,28 ±67,59 -0,431 -0,015
Árshiti/Mean annual temp. (eC) 3,06 ± 0,08 -0,511 -0,046
Aldur lúpínu (ár)/Lupin age (yrs) 12,30 ± 0,97 -0,596 -0,088
Gróður/Vegetation:
Hæð lúpínu/Luphj height (cm) 55,43 ± 3,86 -0,678 -0,014
Gróðurþekja/Plant cover (%):
Lúpína/Lupin 49,65 ± 3,70 -0,590 0,007
Aðrar tvíkímblaða jurtir/Other dicots 6,05 ± 1,19 -0,278 -0,034
Runnar/Divarf shrubs 7,10 ± 1,70 0,297 0,582
Grös/Grasses 11,32 ± 1,39 -0,379 -0,128
Starir og sef/Sedges nnd rushes 0,27 ± 0,07 0,325 0,220
Mosar/Bryophytes 20,23 ± 2,76 -0,445 0,067
Fléttur/Lichens 0,29 ± 0,09 0,373 0,130
Sina/Standing dead 45,96 ± 3,32 -0,723 0,028
Ógróið yfirborð/Bare ground 17,41 ± 3,10 0,609 -0,372
Tegundafjöldi/Species richness:
Háplöntur/VflscM/or plnnts 13,95 ± 0,89 0,692 0,278
Mosar / B ryophytes 5,75 ± 0,50 0,329 0,086
Fléttur/Lic/iejis 1,27 ± 0,25 0,593 0,074
2. tafla. Fylgni (r) umhverfispátta og nokkurra gróðurþátta við reitahnit á 1. og 2.
hnitaás fjölbreytugreiningar. Meðaltal ± staðalskekkja, feitletrun mcrkir marktæka
fylgni, p<0,01, n=93. - Correlation (r) of environmental and some vegetation variables
with plot scores on axis 1 and 2 of the Decorana ordination. Average ± s.e. Significant
correlation is indicated in bold, p<0.01, n=93.
101