Náttúrufræðingurinn - 2003, Side 26
Náttúrafræðingurinn
o o Sunnanlands/Sc Norðanlands/Ni uthem lceland irthem Icetand
C N O * o O o d?
Hitastig/ Temperature ^ Úrkoma/ Precipitation b Ov O • f 0Q?<P0o° FOo C O ) H.y.s./ H.a.s.
Aldúr lúpínu/ Lupin age o ® c9 ° O ®0 °/93° ° pH
vJ
CTl
'fð
1 2
1. ás/Axis 1
3. mynd. Niðurstöður fjölbreytugreiningar á gróðurfari reita í og við lúpínubreiður og
tengslum þess við umhverfisþætti (2. tafla). Stefna örva gefur til kynna íhvaða átt meg-
inbreyting í viðkomandi umhverfisþætti verður, en lengd þeirra hversu sterk fylgnin er.
Staðsetning reita er sýnd á 1. og 2. ási hnitunar. - Results of multivariate analysis of
variation in vegetation of plots sampled inside and outside lupin patches and its
correlation with environmental variables (table 2). Arrow direction indicates direction
of main change for the variable whereas the length indicates the strength of the
correlation. Positions of plots along Decorana ordination axes 1 and 2.
borðs, sinu, fléttna og helstu mosa-
tegunda var einnig ákvörðuð á
sama hátt. í hverjum smáreit var
safnað sýnum af mosum og fléttum
til síðari greiningar. Þannig fengust
sambærilegar upplýsingar um tíðni
háplöntu-, mosa- og fléttutegunda í
öllum reitum, en tíðni er fjöldi smá-
reita sem tegund finnst í. Fjögur
sýni af jarðvegi, frá yfirborði niður á
10 cm dýpi, voru tekin í hverjum reit
að lokinni gróðurgreiningu.
Við tölfræðilega úrvinnslu og
túlkun á gróðurgögnum var notuð
fjölbreytugreining. Beitt var hnitun
sem var gerð á öllu gagnasafninu í
einu, þ.e. 93 reitir frá 26 sniðum á 15
stöðum á landinu. Hnitunin var
byggð á tíðni allra þeirra 269 teg-
unda háplantna, mosa og fléttna sem
fundust í reitunum. Jafnframt var í
greiningunni könnuð fylgni um-
hverfisþátta við breytileika í gróður-
fari. Notað var svonefnt CANOCO-
forrit og beitt DCA-hnitun (ter Braak
1987). I gagnasafni yfir umhverfis-
þætti voru eftirfarandi breytur fyrir
hvern reit: sýrustig, heildarmagn
kolefnis og köfnunarefnis í jarðvegi,
áætlaður aldur lúpínu, hæð yfir sjáv-
armáli, meðalársúrkoma og meðal-
árshiti (1. tafla) (Borgþór Magnús-
son, Sigurður H. Magnússon og
Bjarni D. Sigurðsson 2001).
NlÐURSTÖÐUR OG
UMFJÖLLUN
Megindrættir í gróðri og
umhverfisþáttum
Við hnitunargreiningu á gróðri og
umhverfisþáttum einstakra reita
innan lúpínubreiðna og á viðmiðun-
arlandi utan þeirra fékkst allgóð
mynd af breytileika í gróðurfari og
hvað lá að baki honum (3. mynd).
Þeim sem er ótamt að lesa úr niður-
stöðum sem þessum er rétt að benda
á að reitir (punktar) sem liggja ná-
lægt hver öðrum á myndinni eru lík-
ir að gróðurfari en eftir því sem
lengra er á milli þeirra verða þeir
ólíkari. I greiningu af þessu tagi rað-
ast reitir á 1. ási eftir þeim einkenn-
andi gróðri sem best greinir þá að, á
2. ás eftir einkennum sem næstbest
aðgreina og síðan koll af kolli á fleiri
ásum. Hér er látið nægja að skoða
niðurstöður á 1. og 2. ási, sem að
jafnaði hafa mest upplýsingagildi. I
greiningunni reyndist eigingildi
ásanna vera 0,46 og 0,25. Með því að
kanna fylgni umhverfisþátta við
þessa ása má komast nær um hvað
veldur mun á gróðri reita.
En hvað má þá lesa út úr þessari
skipan reita (3. mynd)? í fyrsta lagi
er munur á milli landshluta. Reitir
frá svæðum sunnanlands eru mjög
dreifðir eftir 1. ási en mynda jafn-
framt þétta og afmarkaða þyrpingu
lengst til vinstri á ásnum. Reitir frá
svæðum norðanlands hafa hins veg-
ar minni dreifingu á 1. ási en eru
dreifðari á 2. ási. Reitir þaðan mynda
heldur ekki viðlíka þyrpingu og reit-
ir frá sunnanverðu landinu. Hvað
hér liggur að baki má betur greina
með því að líta á hvaða breytingar
verða á umhverfi og gróðri á milli
reita. Inn á myndina hafa verið
teiknaðar örvar sem sýna tengsl ein-
stakra umhverfisþátta við breyti-
leika í gróðurfari, samkvæmt fylgni-
útreikningum greiningarinnar. Lengd
örva gefur til kynna hversu sterk
tengslin eru, en stefna þeirra í hvaða
átt meginbreyting verður. Köfnunar-
efni (N), kolefni (C) og sýrustig (pH)
í jarðvegi höfðu, ásamt aldri lúpínu,
sterkust tengsl við gróðurfarið.
Tengslin við hita og úrkomu voru
nokkru minni og langminnst voru
þau við hæð reita yfir sjávarmáli.
Stefna veðurfarsþáttanna fór saman
við 1. ásinn og aldur lúpínu vék ekki
langt þar frá. Breyting á jarðvegs-
þáttunum tengdist hins vegar báð-
um ásunum (3. mynd). Bein fylgni á
milli reitahnita og umhverfisþátta,
sem reiknuð var, skýrir þessi tengsl
enn frekar (2. tafla). Allir mældir
umhverfisþættir, nema hæð reita
yfir sjó, höfðu marktæka fylgni við
1. ás, en sterkust var fylgnin við
köfnunarefni í jarðvegi og aldur
lúpínu. Aðeins jarðvegsþættirnir
sýndu marktæka fylgni við 2. ás og
var fylgni við kolefni langhæst (2.
tafla).
102