Náttúrufræðingurinn - 2003, Síða 63
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Brandur
9
Suðurey
Hellisey
l) Geldungur
(5 Súlnasker
Surtsey 0 Geirfuglasker
(Surtla)
(Syrtlingur)
<3
(Jólnir)
O öldumælir
km 0
10
1. mynd. Vestmannaeyjar. Yfirlitskort byggt á kortum Landmælinga íslands (Sveinn P.
Jakobsson 2000). Hringurinn suður af Súlnaskeri sýnir staðsetningu öldumælis Sigl-
ingastofnunar. - The Vestmannaeyjar archipelago, off the south coast of Jceland, based
on maps from the National Land Survey of Iceland. The red circle east-southeast of
Surtsey shows the location of the lcelandic Maritime Administration wave-meter.
tíma hér á landi. I fyrstu voru
sprengigos og fínlagskipt basalt-
gjóska myndaði tvo skeifulaga gígi
(2. og 3. mynd). Á þessu tímabili
náði eyjan 174 m hæð og reis um 300
metra frá sjávarbotninum. Hraun
tók að renna frá vestari sprengigígn-
um 4. apríl 1964 og rann til 17. mars
1965. Skömmu síðar gaus á sjávar-
botni norðaustan við Surtsey og eyj-
an Syrtlingur myndaðist. Gosið stóð
stutt, hraun náði ekki að renna og
eyjan varð að lokum briminu að
bráð í október 1965. Næst gaus suð-
vestan við Surtsey og önnur eyja,
Jólnir, myndaðist. Þessi eyja hlaut
sömu örlög og Syrtlingur, hún hætti
að gjósa í byrjun ágúst 1966 og var
horfin í október sama ár. Þann 16.
ágúst 1966 tók aftur að gjósa hrauni
í Surtsey, að þessu sinni úr gos-
sprungu í eystri sprengigígnum.
Þaðan rann hraun fram að 5. júní
1967 en þá lauk Surtseyjareldum. Á
tímabilinu október 1966 til janúar
1967 rann auk þess hraun úr fimm
litlum gossprungum í eystri sprengi-
gígnum (3. mynd) (Sigurður Þórar-
insson 1966,1968).
JARÐMYN DANIR
Gjóskan sem myndaðist í upphafi
Surtseyjarelda er fíngerð og laus í
sér og ekki varð vart við að hún
harðnaði fyrstu árin. Sjórinn vann
því auðveldlega á henni, jafnvel
meðan á sprengigosunum stóð.
Þegar þeim lauk rauf sjórinn síðan
burt töluverðan hluta gjóskunnar
vestan og austan megin á eynni.
Hraun þöktu 1,65 km: í Surtsey
við goslok í júní 1967 og nær hraun-
lagastaflinn 100 m þykkt í vestari
hraungígnum. Surtseyjarhraunin
eru nokkuð mismunandi að þykkt.
Mörg hraunanna vestan megin eru
minna en einn metri á þykkt en
sunnan til á eynni eru þau þykkari
og á einum stað allt að 20 m á
þykkt. Austan til á eynni eru hraun-
in víða nokkrir metrar á þykkt. Það
sem mest hefur komið á óvart við
rof Surtseyjar er hversu auðveld-
lega sjórinn hefur unnið á hraunun-
um. Skýringin er trúlega sú að
hraunin eru þunn og yfirleitt afar
sprungin. Þá er undirlag þeirra
óharðnað brotaberg sem myndaðist
við sprengingar þegar hraunin
runnu í sjó fram.
Móberg fannst fyrst á yfirborði í
september 1969 í suðausturnefi
eystri sprengigígsins (sjá 2. mynd).
Jarðhitasvæði myndaðist í eystri
sprengigígnum í lok ársins 1966 eða
byrjun 1967 og fljótlega eftir það
hefur gjóskan farið að ummyndast
undir yfirborði af völdum hitans,
bæði ofan sjávarmáls og neðan
(Sveinn R Jakobsson 1978). Það er
hugsanlegt að verulegur hluti gjósk-
unnar ofan sjávarmáls hafi, þegar
árið 1969, verið orðinn að móbergi.
Móbergssvæðið stækkaði fram til
um 1975, en þá tók að draga úr yfir-
borðshita. I vesturklettum Surtseyj-
ar var móbergið orðið vel sýnilegt
árið 1981 (4. mynd). Móbergið stenst
sjávarrof yfirleitt afar vel eins og
ljóst er þegar aðrar úteyjar Vest-
mannaeyja eru athugaðar, svo sem
Bjarnarey, Elliðaey og Suðurey. Mó-
bergskjarninn er nú áætlaður um
0,39 km2, miðað við sjávarmál.
Strandset myndaðist í Surtsey
skömmu eftir að gosið hófst. I lok
árs 1966 tók að myndast tangi úr
strandseti norðan á eynni. Síðan
hefur tanginn verið mjög áberandi
og hefur mælst mest 0,33 km2. Hann
hefur með tímanum færst töluvert
til og breytt um lögum (5. mynd).
Kornastærðardreifing strandsetsins
er mikil, allt frá lábörðum björgum
sem eru um 2 metrar í þvermál nið-
ur í fínan sand. Langstærsti hluti
tangans er ættaður úr hraununum,
þetta eru hnullungar, möl og sand-
ur sem hafa borist með ölduhreyf-
ingum frá suðurhluta eyjarinnar til
139