Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2003, Page 77

Náttúrufræðingurinn - 2003, Page 77
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Alþýðlegt fræðslurit um náttúrufræði 71. árg. 3.-4. tbl. 2003 Leiðbeiningar til höfunda um frágang greina Eins og boðað var í leiðara formanns HÍN í síðasta hefti ákvað stjórn félagsins að breyta nokkuð framsetningu greina í Náttiírufræðingnum. Breytingin er eink- umfólgin í tilvitnunum íheimildir, sem framvegis verða auðkenndar með hlaup- andi númerum innan sviga í stað höf- undarnafns og ártals. Hér á eftir fara leiðbeiningar um frágang greina sem höfundar eru vinsamlega beðnir að kynna sér og fylgja pegar peir ganga frá lmndriti til Náttúrufræðingsins. ALMENNT Náttúrufræðingnum var hleypt af stokkunum árið 1931 til þess að vera alþýðlegt fræðirit um náttúrufræði handa Islendingum og hefur rit- stjórnarstefna hans verið óbreytt að þessu leyti frá upphafi. Höfundar eru beðnir um að hafa þetta í huga við skriftirnar. Náttúrufræðingurinn birtir efni um öll svið náttúrufræða og má skipta því í fimm flokka: (1) alþýð- legar yfirlitsgreinar um ákveðin svið, (2) hefðbundnar greinar um rannsóknir og niðurstöður þeirra, (3) athugasemdir, fréttir og tilkynning- ar, (4) gagnrýni og ritfregnir um náttúrufræðileg efni og (5) eftirmæli um náttúrufræðinga. Almennt er óskað eftir því að greinar séu stuttar og hnitmiðaðar. Mælst er til þess að greinar í öðrum flokki séu ekki lengri en 16 prentaðar síður (A4) og að þeim fylgi enskt yfirlit sem og töflu- og myndatextar á ensku. Aðr- ar greinar eiga að vera mun styttri og ekki er ætlast til að þeim fylgi enskir textar. Ritstjórn fer yfir handrit og getur gert tillögur til höfunda um breyt- ingar á þeim. Greinar í fyrsta og öðr- um flokki fá faglega ritrýni eins og tíðkast í vísindatímaritum. I því skyni leitar ritstjórn umsagnar fær- ustu manna á hverju sviði um efni greina og sendir þær athugasemdir til höfunda. HANDRIT Handriti að grein skulu höfundar skila á tölvutæku formi ásamt út- prentun á A4-pappír. Spássíur skulu vera rúmar (>3 cm) fyrir leiðrétting- ar og ábendingar. Blaðsíður skulu tölusettar. FRAMSETNING og N IÐURRÖÐUN EFNIS Höfundar eru hvattir til þess að vanda frágang handrita svo sem framast er kostur og fylgja þeim leið- beiningum sem hér eru gefnar. Þeim er jafnframt bent á að skoða frágang greina í nýjustu heftum Náttúru- fræðingsins hverju sinni og hafa til fyrirmyndar við vinnslu handrita. 1. Titilsíða gefur heiti greinar og skal það vera stutt og gefa glögga mynd af því sem grein- in fjallar um. Undir heiti komi nafn höfundar/höfunda, stutt lýsing á ferli þeirra og heimilis- fang (póst- og netfang). 2. Texti. Inngangur skal vera stuttur og gefa til kynna um hvað greinin fjallar eða af hvaða tilefni hún er skrifuð. Um greinar í öðrum flokki gildir að í inngangi (Introduct- ion) skal gera grein fyrir fræði- legum bakgrunni efnis, kynna að því búnu aðferðir, niður- stöður og umræðu. Aðalfyrirsögn skal vera stutt og gagnorð og segja ótvírætt um hvað kaflinn fjallar. Millifyr- irsagnir má hafa til þess að skipta köflum upp í smærri ein- ingar. Erlend orð skal nota sem allra minnst. Þar sem ekki verð- ur hjá því komist skulu þau höfð í „gæsalöppum", (innan sviga) eða skáletruð, eftir því sem við á hverju sinni. Þegar um nýyrði er að ræða er æski- legt að hafa með erlend orð sömu merkingar til glöggvunar. Latnesk tegunda- og ættkvísla- heiti dýra og plantna prentast skáletruð (nema í skáletruðum texta þar sem þau eru prentuð með beinu letri). Tilvitnanir í heimildir skulu auðkenndar með hlaupandi númerum inn- an sviga; sú heimild sem kemur fyrst fyrir verður þá númer (1) o.s.frv. Islenskir höfundar skulu nefndir fullu nafni. Sé vitnað í einstakling sem heimild að óbirtum upplýsingum, skal hans getið með nafni í megin- máli en ekki í heimildaskrá. 3. Ágrip á ensku, „SUMMARY", skal fylgja greinum sem fjalla um eigin rannsóknir (annar flokkur). Ágripið á að draga fram meginatriði greinar í stuttu máli. Æskilegt er að lengd þess sé ekki meiri en 250 orð. 4. Heimildaskrá skal setja upp samkvæmt röð heimilda í meg- inmáli. Geta skal allra höfunda að heimild. Á eftir nafni höf- undar komi fyrst útgáfuár heimildar en síðan heiti hennar. Skrá skal bæði fornafn og eftir- nafn íslenskra höfunda en eftir- nafn erlendra höfunda og upp- hafsstaf fornafns. Sé heimild grein í safnriti skal geta ritstjóra 153

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.