Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 14
Halastjarnan
HALE-BOPP
GUNNLAUGUR BJÖRNSSON
Halastjörnur hafa löngum þótt með
áhrifameiri fyrirbærum sem birtast á
himinhvelfingunni. Fyrr á öldum voru
þær taldar undanfari válegra tíðinda
enda birtust þær upp úr þurru á
hvelfíngunni. Nú er halastjörnunnar
Hale-Bopp hins vegar beðið með eftir-
væntingu en hún verður næst jörðu 22.
mars nk. Hún sést nú þegar með berum
augum en kjarni hennar er stærri en
flestra þekktra halastjarna.
Veturinn 1995-1996 heimsótti
halastjarnan Hyakutake innsta
hluta sólkerfisins. Varð hún
______ bjartasta halastjarna sem birst
hefur á næturhimninum um allnokkurt
skeið, nægilega björt til að auðveldlega
mátti sjá hana berum augum. Vakti hún því
talsverða athygli, jafnvel þó nútímamcnn
telji halastjömur ekki lengur fyrirboða
válegra tíðinda.
Þann 23. júlí 1995 fundu bandarískir
stjömuáhugamenn, Alan Hale og Thomas
Bopp, hvor í sínu lagi halastjömuna sem
við þá er kennd. Á þeim tíma var hún utan
við braut Júpíters, mun utar í sólkerfinu en
aðrar halastjömur sem áhugamenn hafa
Gunnlaugur Bjömsson (f. 1958) lauk B.S.-prófi í
eðlisfræði frá Háskóla íslands 1982. Hann var
kennari við Fjölbrautaskólann á Akranesi 1982-1984,
stundaði rannsóknir um fjögurra ára skeið við Nordita
i Kaupmannahöfn og lauk doktorspróli í
stjameðlisfræði frá University of Illinois 1990.
Gunnlaugur hefur starfað hjá Raunvísindastofnun
Háskólans frá 1991.
124
fundið til þessa. Hins vegar reyndist hún til
muna bjartari en aðrar halastjörnur sem
sést hafa úr sömu ijarlægð. Vakti það vonir
manna um að hún myndi verða enn bjartari
en Hyakutake er hún kæmi innar i
sólkerfið. Hafa þær væntingar ræst að
mestu leyti, eins og vikið verður að síðar.
Halastjörnur
Halastjörnur em að mestu leyti samsettar
úr ísefnum blönduðum jarðefnum ýmiss
konar. Talið er að þær séu leifar efnisins
sem sólkerfið myndaðist úr. ísefnið gufar
upp er halastjarnan kemur inn undir sól og
myndar hjúp um fastan kjarnann. Hjúpur-
inn endurkastar sólarljósinu afar vel og
geta halastjömur því orðið mjög bjartar ef
afstaða þeirra til jarðar og sólar er heppileg.
Sólvindurinn blæs svo hluta ísefnisins út í
geiminn og myndast þá halinn sem ávallt
vísar frá sól.*
í innsta hluta sólkerfisins er nú orðið
fremur lítið um halastjömur en enn heim-
sækja okkur halastjömur sem dveljast að
mestu utarlega í sólkerfmu og jafnvel langt
utan þess. Flestar eru þær á braut um sólu
og hafa umferðartíma allt frá nokkrum
ámm og upp í tugþúsundir ára. Sumar em
reyndar á opnum brautum sem kallað er og
koma því einungis einu sinni inn að sól en
síðan aldrei aftur.
Braut Hale-Bopp er mjög aflangur spor-
baugur. Áður en hún kom inn undir sól að
* Sjá nánari lýsingu á halastjömum í grein höfundar
„Árckstur aldarinnar" i 2.hefti 64. árgangs Náttúru-
fræðingsins, bls. 131-138.