Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1997, Blaðsíða 56

Náttúrufræðingurinn - 1997, Blaðsíða 56
1. Heimaey, Vestm, 14.-19. september 1988 (<? ad RM9726). - Ævar Petersen (1989), GP, GÞ & EÓ (1991). Þama var á ferðinni fullorðinn karlfugl sem er auðgreindur og engri annarri teg- und líkur. Hann sást í september eins og tveir grænlensku fuglanna. 5. mynd. Grænskríkja (Dendroica virens). Ljósm./photo L. Page Brown/Comell Lab. of Omithology. GrænskrIkja (Dendroica virens) Undirtegundin virens verpur í Kanada frá Alberta í vestri, austur eftir norðanverðu Manitoba, Ontario og Quebec til Labrador og Nýfundnalands. Hún nær suður til norðaustanverðra Bandaríkjanna, frá Minne- sota austur til strandar, allt suður til New York, síðan áfram suður eftir Appalachianfjöllum til Alabama og Georgíu. Undirtegundin waynei hefur takmarkaðri útbreiðslu en hún er staðbundin í Virginíu, og Norð- ur- og Suður-Karólínu. Síðamefnda undirteg-undin fer til vetrarstöðva á Kúbu en hin dvelur á veturna í Texas, Mið-Ameríku (í austanverðu Mexíkó suður til Panama) og á Stóru-Antillaeyjum. Farleiðir liggja yfir Mexíkóflóa. Varpstöðvar grænskríkju (5. mynd) eru barrskógar norðursins en hún er þó einnig algeng i laufskógum. Hún heldur sig gjaman efst í hávöxnum trjám og sést því oft lítið til hennar. Auðþekktur söngurinn gefur hins vegar nærveru hennar glöggt til kynna. Hún gerir sér hreiður í trjám, allt ífá jörðu og upp í um 20 m hæð. Grænskríkja hefur fundist þrisvar á Grænlandi, árið 1853, haustið 1933 og í september 1949 (Boertmann 1994). Hún var ekki hátt skrifuð hjá Robbins (1980) og lenti í 29. sæti listans yfir tegundir sem ekki höfðu sést á Bretlandseyjum, með stuðulinn 0,98. Reyndar hafði hún þá aðeins sést á einum stað austan Atlantsála, á eynni Helgolandi við Þýskaland á síðustu öld, eða 19. nóvember 1858 (Alexander og Fitter 1955). Siðan hefur hún fundist einu sinni hér við land. 1. Reykjavík (Sundahöfn), 19. september 1984 ($ imm RM8447). Fundin dauð um borð í skipi. - Ævar Petersen (1985), GP & EÓ (1986). Reyndar náði þessi fugl aldrei að tylla fæti á íslenska grund þar sem hann fannst nýdauður um borð í ms. Bakkafossi við uppskipun í Sundahöfn í Reykjavík. Það leyndi sér ekki að fuglinn var nýdauður er hann fannst og því er talið að hann hafi borist lifandi inn fyrir íslenska lögsögu. Hins vegar er óljóst hvenær hann lenti á skipinu. Reyndar er talið að smáfuglar sem lenda á skipum tærist mjög hratt og drepist nema þeim sé gefið æti (Alexander og Fitter 1955). Það er þó alltént víst að fugl þessi náði ekki alla lcið til landsins fyrir eigið tilstilli en hefur þó sennilega flogið Iangleiðina; sjá frekari umfjöllun Ævars Petersen (1985). Grænskríkja hefur því verið sett i fiokk D á íslenska fuglalistanum (sjá Gunnlaug Pétursson 1995) og er því ekki talin með þegar heildarljöldi skríkja á Islandi er tekinn saman. 6. mynd. Glóskríkja (Dendroica fusca). Ljósm./photo W. A. Paff/Comell Lab. of Ornithology. Glóskríkja (Dendroica fusca) Glóskríkja (6. mynd) hefur mjög svipaða varpútbreiðslu og grænskríkja en nær þó ekki eins langt norður og vestur í Kanada. Hún verpur frá Saskatchewan og Manitoba í vestri, austur um botn Jamesflóa og allt til Nova Scotia, en ekki á Nýfundnalandi. Þá er hún í norðaustanverðum Bandaríkjun- um vestur til Minnesota og suður til New York, auk þess áfram suður eftir Appal- achianíjöllum allt til Suður-Karólínu og Georgíu. Vetrarstöðvar eru frá Guatemala suður um Mið-Ameríku til Frönsku-Guy- ana, Perú og íjalllendis Kólumbíu og Venezúela. Glóskríkja er fargestur í 166
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.