Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1997, Blaðsíða 70

Náttúrufræðingurinn - 1997, Blaðsíða 70
Á NÆSTUNNI Nokkur fjöldi greina bíður nú birtingar í Náttúrufræðingnum og það er liðin tíð, a.m.k. í bili, að útgáfan tefjist vegna skorts á aðsendu efni. I framhaldi afbreyttum áherslum í efnisvali berst tímaritinu nú sífellt meira af alþýðlegu efni. Helst er hörgull á stuttum pistlum en þeim fjölgar þó stöðugt. Hér er tæpt á efni nokkurra þeirra greina sem birtast munu í næstu heftum. Mykjuflugan Flestir kannast við mykjufluguna, gulleita eða grængula flugu á stærð við húsflugu sem verður sérlega áberandi í túnum strax eftir að kúnum hefur verið hleypt út. En hvað eru flugurnar að gera í kringum mykjuna? Hrefna Sigurjónsdóttir gerir grein fyrir rannsóknum sínum og annarra á atferli og vistfræði flugunnar. Blanda OG BLEIKJAN Guðni Guðbergsson og Þórólfur Antonsson skýra frá rannsóknum sínum á bleikju í vötnum á veituleið Blönduvirkjunar á Auð- kúluheiði en þeir rannsökuðu fiskigengd í vötnunum í ijögur ár fyrir virkjun og í jafn langan tíma eftir virkjun. Saman- burðarrannsóknir í tveimur vötnum sem ekki urðu fyrir röskun vegna virkjunarinnar sýna hvaða breytingar verða af náttúrulegum orsökum og hver áhrif virkjunarinnar eru. Trjábolaförá BARÐASTRÖND Magnús Á. Sigurgeirsson og Sveinn P. Jakobsson lýsa trjábolamenjum frá tertíer sem jarðfræðinemar fundu í Skriðna- fellsnúpi á Barðaströnd 1989. Þetta eru afsteypur trjábola sem myndast þegar bergbráð fyllir holrými sem trjábolir hafa skilið eftir sig í hrauni. Ein afsteypan var tekin niður að hluta í þeim tilgangi að koma henni íyrir í sýningarsal Náttúrufræði- stofnunar. VÁGESTIR í PLÖNTUSVIFINU Guðrún G. Þórarinsdóttir og Þórunn Þórðardóttir fjalla um svifþörunga sem framleiða eitur en blómi þeirra getur valdið miklu tjóni einkum í staðbundnum dýrastofnum og í sjóeldi. Nokkrar tegundir eitraðra svifþörunga eru gamalgrónar í flóru íslandsmiða þó fáum sögum fari af eitrunum af þeirra völdum. Náttúran í STRAUMSVÍK í undirbúningi er sérstakt hefti Náttúru- fræðingsins um náttúrufar í næsta nágrenni álversins í Straumsvík og er það unnið í samstarfi við Islenska álfélagið og samtök áhugamanna um náttúru Straumsvíkur. I þessu hefti, sem fyrirhugað er að komi út í sumar, mun Gunnar Olafsson fjalla um Ástjöm, Haukur Jóhannesson og Sigmundur Einarsson fjalla um hraunin, Freysteinn Sigurðsson um grunnvatnið, Hörður Kristinsson um gróðurinn, Agnar Ingólfs- son um lífið í fjöru og tjörnum, Svend Aage Malmberg um hafstrauma og sjávarföll, Jörundur Svavarsson um lífíð í sjó og á sjávarbotni, Þór Tómasson fjallar um loftmengun frá álverinu og Sigurður Guðjónsson og Jóhannes Sturlaugsson segja frá nýfundnu bleikjuafbrigði sem lifír í tjömunum og í holum í hraunjaðrinum. Þá verður greint frá þeim ferlum sem álframleiðsla í iðjuverinu byggist á. 180
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.