Náttúrufræðingurinn - 1997, Qupperneq 70
Á NÆSTUNNI
Nokkur fjöldi greina bíður nú birtingar í Náttúrufræðingnum og það er liðin tíð,
a.m.k. í bili, að útgáfan tefjist vegna skorts á aðsendu efni. I framhaldi afbreyttum
áherslum í efnisvali berst tímaritinu nú sífellt meira af alþýðlegu efni. Helst er
hörgull á stuttum pistlum en þeim fjölgar þó stöðugt. Hér er tæpt á efni nokkurra
þeirra greina sem birtast munu í næstu heftum.
Mykjuflugan
Flestir kannast við mykjufluguna, gulleita
eða grængula flugu á stærð við húsflugu
sem verður sérlega áberandi í túnum strax
eftir að kúnum hefur verið hleypt út. En
hvað eru flugurnar að gera í kringum
mykjuna? Hrefna Sigurjónsdóttir gerir
grein fyrir rannsóknum sínum og annarra á
atferli og vistfræði flugunnar.
Blanda OG BLEIKJAN
Guðni Guðbergsson og Þórólfur Antonsson
skýra frá rannsóknum sínum á bleikju í
vötnum á veituleið Blönduvirkjunar á Auð-
kúluheiði en þeir rannsökuðu fiskigengd í
vötnunum í ijögur ár fyrir virkjun og í jafn
langan tíma eftir virkjun. Saman-
burðarrannsóknir í tveimur vötnum sem
ekki urðu fyrir röskun vegna virkjunarinnar
sýna hvaða breytingar verða af
náttúrulegum orsökum og hver áhrif
virkjunarinnar eru.
Trjábolaförá BARÐASTRÖND
Magnús Á. Sigurgeirsson og Sveinn P.
Jakobsson lýsa trjábolamenjum frá tertíer
sem jarðfræðinemar fundu í Skriðna-
fellsnúpi á Barðaströnd 1989. Þetta eru
afsteypur trjábola sem myndast þegar
bergbráð fyllir holrými sem trjábolir hafa
skilið eftir sig í hrauni. Ein afsteypan var
tekin niður að hluta í þeim tilgangi að koma
henni íyrir í sýningarsal Náttúrufræði-
stofnunar.
VÁGESTIR í PLÖNTUSVIFINU
Guðrún G. Þórarinsdóttir og Þórunn
Þórðardóttir fjalla um svifþörunga sem
framleiða eitur en blómi þeirra getur valdið
miklu tjóni einkum í staðbundnum
dýrastofnum og í sjóeldi. Nokkrar tegundir
eitraðra svifþörunga eru gamalgrónar í
flóru íslandsmiða þó fáum sögum fari af
eitrunum af þeirra völdum.
Náttúran í STRAUMSVÍK
í undirbúningi er sérstakt hefti Náttúru-
fræðingsins um náttúrufar í næsta nágrenni
álversins í Straumsvík og er það unnið í
samstarfi við Islenska álfélagið og samtök
áhugamanna um náttúru Straumsvíkur. I
þessu hefti, sem fyrirhugað er að komi út í
sumar, mun Gunnar Olafsson fjalla um
Ástjöm, Haukur Jóhannesson og Sigmundur
Einarsson fjalla um hraunin, Freysteinn
Sigurðsson um grunnvatnið, Hörður
Kristinsson um gróðurinn, Agnar Ingólfs-
son um lífið í fjöru og tjörnum, Svend Aage
Malmberg um hafstrauma og sjávarföll,
Jörundur Svavarsson um lífíð í sjó og á
sjávarbotni, Þór Tómasson fjallar um
loftmengun frá álverinu og Sigurður
Guðjónsson og Jóhannes Sturlaugsson
segja frá nýfundnu bleikjuafbrigði sem lifír
í tjömunum og í holum í hraunjaðrinum.
Þá verður greint frá þeim ferlum sem
álframleiðsla í iðjuverinu byggist á.
180