Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 44
3. mynd. Efnistaka í Eldborg við TröIIadyngju. Ljósm. Þóroddur F. Þóroddsson.
fæst yfírlit yfir mismunandi sjónarmið
þegar á frumstigi, einmitt þegar mestir
möguleikar eru á því að hægt sé að taka
tillit til þeirra. Reynslan hefur hins vegar
sýnt að enn eru framkvæmdaraðilar tregir
til að hleypa almenningi markvisst að
málum nægilega snemma. Umhverfis-
rannsóknir í tengslum við matið geta
einnig leitt í ljós aðstæður er setja fram-
kvæmd verulegar skorður eigi umhverfið
ekki að bera skaða af. Mikilvægt er að
slíkar upplýsingar komi fram snemma svo
færi gefíst á að leita nýrra lausna áður en
hönnun lýkur.
Þegar framkvæmdaraðili leggur fram
matsskýrslu til umfjöllunar hjá Skipulagi
ríkisins leitar Skipulagið umsagna hjá
sérfræðistofnunum og öðrum sérfróðum
aðilum eftir aðstæðum hverju sinni. Þetta
er mikilvægur liður i því að tryggja að
höfundar matsskýrslu hafi gætt hlutleysis.
Einnig tryggir þetta samráð að uppfyllt séu
ákvæði annarra laga (s.s. um mengun,
náttúruvemd og þjóðminjar). Þannig geta
stofnanir sem sjá um framkvæmd þessara
laga komið sjónarmiðum sínum á framfæri
áður en endanlegar ákvarðanir em teknar.
Við umijöllun Skipulags ríkisins er
reynt að tryggja að almenningur og aðrir
hagsmunaaðilar hafí greiðan aðgang að
gögnum sem liggja til grundvallar matinu.
Framkvæmdir em auglýstar í dagblöðum,
á opinberum stöðum, a.m.k. í viðkomandi
sveitarfélagi, og sendar em fréttatilkynn-
ingar til dagblaða og ljósvakamiðla. Það er
ljóst að erfítt getur reynst fyrir almenning
að kynna sér efni matsskýrslu sem liggur
frammi til kynningar í fáum eintökum á
skrifstofu sveitarfélags, þó það sé í 5 vikur.
Því er mikilvægt að framkvæmdir séu vel
kynntar þegar unnið er að matsskýrslu og
haldnir kynningarfundir þegar Skipulag
ríkisins hefur fengið matsskýrsluna til um-
fjöllunar og lagt hana fram til kynningar
með auglýsingu.
Vakin er athygli á því að allir eiga rétt á að
kynna sér áformaðar framkvæmdir og koma á
framfæri athugasemdum eða ábendingum
áður en endanleg ákvörðun er tekin um hvort
framkvæmdir skuli heimilaðar.
154