Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 91
hraunlag, sem myndast hefur innan
gosbeltanna en sést nú á yfirborði utan
þeirra, sögu hitunar samfara fergingu innan
gosbeltisins og síðan kólnunar þegar lagið
rak út úr gosbeltinu og fluttist loks til
yfirborðs aftur við rof.
Háhitaummyndun virðist verða nteð
öðrum hætti. Líklegt er að snögg upphitun
verði þegar innskot treðst fyrst inn í
jarðlög í rótum megineldstöðvar. Hiti helst
hár meðan innskotavirkni á sér stað, en
síðan verður hæg kæling samfara reki
megineldstöðvarinnar út úr gosbeltinu og
rofi.
Líklegt virðist að sú ummyndun sem nú
sést í tertíera jarðlagastaflanum hafí orðið
til í mesta lagi á örfáum milljónum ára.
Hins vegar getur háhitaummyndun ekki
orðið á lengri tíma en nemur aldri megin-
eldstöðva, sem er 100.000 til ein milljón
ára. Líklega ummyndast berg í nágrenni
smáinnskota á miklu skemmri tíma.
Guðmundur Ómar Friðleifsson (1983)
hefur athugað foma háhitaummyndun í
Geitafellseldstöðinni inn af Homafirði á
Suðausturlandi. Hann hefur rakið sögu
ummyndunarinnar með því að greina
afstæðan aldur sprungufyllinga og lag-
skiptingu ummyndunarsteinda i holum. í
slíkum holum eru yngstu steindirnar
greinilega innst en þær elstu út við veggi
holunnar. í Geitafelli leggjast háhita-
steindir beint ofan á veðrunarsteindir í
holum. Það bendir til snöggrar upp-
hitunar. Þá bendir lagskipting ummyndun-
arsteindanna til hægrar kólnunar alveg í
samræmi við það sem lýst var hér að ofan
og ályktað var út frá almennri jarðfræði.
■ ÞAKKARORÐ
Halldór Ármannsson og Ámi Hjartarson
lásu handritið yfír, lagfærðu margt, sem
betur mátti fara, og komu með ýmsar
gagnlegar ábendingar. Kann ég þeim bestu
þökk fyrir.
■ HEIMILDIR
Annells, R. N. 1969. A geological investigation of
a Tertiary intrusive centre in the Víðidalur-
Vatnsdalur area, northem Iceland. Óbirt
doktorsritgerð, Háskólinn í St. Andrews,
Skotlandi. 615 bls.
Ágúst Guðmundsson 1996. Vöxtur, stöðvun og
lögun bergganga. Vorráðstelfia 1996. Ágrip
erinda og veggspjalda. Jarðffæðafélag íslands.
12-13.
Benedikt Steingrímsson, Guðmundur Ó. Friðleifs-
son, Guðrún Sverrisdóttir, Helga Tuliníus,
Ómar Sigurðsson & Einar Gunnlaugsson 1986.
Nesjavellir, hola NJ-15. Bomn, rannsóknir og
vinnslueiginleikar. Orkustofnun, OS-86029/
JHD-09. 119 bls.
Browne, P.R.L. 1978. Hydrothermal alteration in
active geothermal fields. Ann. Rev. Earth
Planet. Sci. 6. 229-250.
Ellis, A.J. & W.A.J. Mahon 1977. Chemistry and
geothermal systems. Academic Press, New
York. 392 bls.
Flörkc, O.W., J.B. Jones & H.U. Schminke 1976.
A new microcrystalline silica from Gran
Canaria. Zeitschrift fur Kristallographie 143.
156-165.
Georg R. Douglas 1987. Manganese-rich rock
coatings from Iccland. Earth Surface Processes
and Landforms 12. 301-310.
Guðmundur Ómar Friðleifsson 1983. Mineralogi-
cal evolution of a hydrothermal system. Trans.
Geotherm. Resourses Council 7. 147-152.
Guðmundur Pálmason, Gunnar V. Johnsen, Helgi
Torfason, Kristján Sæmundsson, Karl Ragnars,
Guðmundur Ingi Haraldsson & Gísli Karel
Halldórsson 1985. Mat á jarðvarma íslands.
Orkustofnun OS-85076/JHD-10. 134 bls.
GuðmundurE. Sigvaldason 1959. Mineralogische
Untersuchungen úber Gesteinszersetzung durch
postvulkanischc Aktivitat in Island. Beitrage
Min. Petrog. 6. 405—426.
Gunnar Böðvarsson 1961. Physical characteristics
of natural lieat resources in Iceland. Jökull 11.
29-38.
Haraldur Sigurðsson 1966. Geology of the
Setberg Area, Snæfellsnes, Westem Iceland.
Vísindafélag íslcndinga, Greinar IV, 2. 54-
125.
Hrefna Kristmannsdóttir 1979. Alteration of ba-
saltic rock by hydrothennal activity. í
ráðstefhuriti Intemational Clay Conference
1978 (ritstj. M.M. Mortland & V.C. Fanner),
Elsevier, Amsterdam. Bls. 359-367.
201