Náttúrufræðingurinn - 1997, Síða 100
um árstíma, Vatnsmýrina í Reykjavík, Álfta-
nes, Njarðvíkurfítjar, Garðskaga, Sandgerði,
Hafnir og á Hafnaberg. Veður var hægt, svalt
og bjart. Leiðsögumenn voru þeir ágætu
nafnar, Gunnlaugur Pétursson og Gunnlaugur
Þráinsson. Þátttakendur voru 40 og tókst
ferðin mætavel.
JaRÐFRÆÐISKOÐUN í KRÝSUVÍK
OG SELVOGI
Jarðfræðiskoðunarferð var farin 27. maí í
samstarfi við Ferðafélag íslands. Farið var
suður í Krýsuvík, í Selvog, Þorlákshöfn og
heim um Þrengslaveg. Staldrað var á nokkr-
um stöðum, veður var ágætt, skýjað en þurrt.
Leiðsögumenn voru jarðfræðingamir Jón
Jónsson og Guttormur Sigbjamarson, sem
einnig sá um fararstjóm. Þátttakendur vom
21 og tókst ferðin vel.
Umhverfisskoðun
Umhverfisskoðunarferð var farin 10. júní í
Grafning og Þingvallasveit. Farið var um kl.
10 frá Umferðarmiðstöðinni og farið austur
yfir Mosfellsheiði um veituveg. Skoðað var
varmaorkuver Hitaveitu Reykjavíkur á Nesja-
völlum með góðri leiðsögn staðarmanna.
Þaðan var farið að Hagavík og litið á
skógrækt og að Úlfljótsvatni og litið yfír
virkjanasvæði Sogsvirkjana. Eftir hádegi var
farið að Þingvöllum, þar sem staðarhaldari og
þjóðgarðsvörður, sr. Hanna María Péturs-
dóttir, tók á móti hópnum og veitti leiðsögn
um þingstaðinn. Að því loknu veittu þau
hjón, sr. Hanna María og Sigurður Árni Þórð-
arson, hópnum kaffi í Þingvallabænum. Kann
félagið þeim sínar bestu þakkir fyrir frábærar
móttökur og fyrirgreiðslu. Heim var haldið
þjóðveg um Mosfellsheiði. Veður var svalt og
úrkoma í Reykjavík, en hægur vestan kaldi,
sólskin og 15°C hiti í Þingvallasveit. Munu
ýmsir hafa látið úrsvalann í Reykjavík glepja
sig og setið af sér ferðina, sem þótti alveg
frábær, ekki síst vegna móttöku og leiðsagnar
staðarfólks fyrir austan. Leiðsögumenn og
fararstjórar vom annars Freysteinn Sigurðs-
son og Guttormur Sigbjamarson. Einungis 7
þátttakendur vom í ferðinni og missti þar
margur af frábæmm fróðskap.
SóLSTÖÐUFERÐ A SNÆFELLSNES
Sólstöðuferðin var farin 24.-25. júní og var
þessu sinni farið á Snæfellsnes, einkum undir
Jökul. Leiðsögumenn vom Eyþór Einarsson,
grasafræðingur, Freysteinn Sigurðsson, jarð-
fræðingur og Hans A. Clausen, leiðsögu-
maður, borinn og bamfæddur undir Jökli. Á
Hellissandi tók Skúli Alexandersson, fyrr-
verandi alþingismaður, á móti hópnum og
leiðsagði honum um nágrennið með einstök-
um ágætum.
Laugardaginn 24. júní var lagt upp um kl. 9
frá Umferðarmiðstöðinni og farið þann dag út
á Snæfellsnes að sunnan og gist á Hellissandi.
Veður var aðgerðalítið þann dag, lofthiti yfir
10°C, suðvestangola og skýjað, lognregn allt
vestur að Vegamótum en þaðan af þurrt og
bjart. Áfangi var í Borgamesi og svo staldrað
um stund við Garðatjöm undir Ölduhrygg og
skoðuð horblaðka og annað gróðurríki í
tjöminni. Hádegishlé var í góðviðrinu hjá
Búðum og gengið um hraunið, þar sem
skoðað var burknastóð og annar einkennis-
gróður.
Næst var staldrað stuttlega á Stapa, en
þaðan var farið út á Þúfubjarg og litið til
Lóndranga og skoðuð jarðlög og bjargfuglar.
Þá var farið niður að Djúpalónssandi og
gengið út í Dritvík. Þar var skoðuð hraun-
ströndin og gamlar verstöðvamenjar og gert
kaffihlé. Komið var við í Hólahólum og
gengið inn í aðalgíginn, sem er einhver feg-
ursti „hringleikahús-gígur“ á láglendi. Þaðan
var farið út á Hellissand, þar sem Skúli Alex-
andersson og Hrefna Magnúsdóttir, kona
hans, tóku á móti hópnum til gistingar á
Hótel Gimli og því tengdri gistiaðstöðu. Eftir
kvöldmat var farið út að Gufuskálum og
skoðuð fiskibyrgi á hraunbrún í kvöldsólinni,
en þaðan var farin vikumámsslóð upp undir
jökul um Væjuhraun og framhjá Sjónarhóli.
Gengið var upp undir jökulbarðið og skoðaðir
jökulgarðar, vikurflóð og aðrar jarðfurður.
Svo var snúið aftur í náttstað.
Á sunnudag var lagt upp um kl. 10 og farið
fyrst í fylgd Skúla út á Öndverðames. Þá var
norðvestan kæla og sólskin, sem hélst norðan
ness um daginn. Á leiðinni út eftir var komið
við á Gufuskálum og skoðaðar varir og írski-
bmnnur, síðan farið út á Sólsetursboga og svo
staldrað í hrauninu og skoðaður gróður. Á
Öndverðarnesi var skoðaður bmnnurinn
Fálki, Brugghellir framan í strandhömrunum
og fleiri furður. Þaðan var ekið aftur inn á
Hellissand, komið við í Sjómannagarðinum
og síðan haldið inn að Rifshöfn, þar sem litið
210