Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1985, Síða 74

Náttúrufræðingurinn - 1985, Síða 74
laut það ekki í lægra haldi fyrir ensku fyrr en á 19. öld. Lifnaðarhættir og búskapur eyjaskeggja hefur mjög ver- ið af sama toga og Færeyinga, og raun- ar okkar líka, fiskveiðar og sauðfjár- hald, enda bera eyjarnar þess vottinn, eins og greinin segir frá. Höfundur greinarinnar um landnám Hjaltlands, Jóhannes Jóhansen, er forstöðumaður Náttúrugripasafns Færeyja. Hann er fæddur á Ströndum í Færeyjum árið 1937. Hann lauk prófi í plöntufræðum við háskólann í Kaup- mannahöfn 1966 og var frjógreining sérfræði hans. Hann vann við Jarð- fræðistofnun Danmerkur frá því að prófi lauk til 1980, þegar hann var ráðinn að safninu í Færeyjum. Hann hefur lagt stund á gróðurrannsóknir í Færeyjum og á Hjaltlandi og rakið gróðursöguna allt frá lokum ísaldar og fram að þessu. Um þetta hefur hann skrifað í Fróðaskaparrit, Árbækur dönsku Jarðfræðistofnunarinnar, svo og í New Phytologist. Hákon Bjarnason

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.