Náttúrufræðingurinn - 1987, Blaðsíða 66
~'~K
2. mynd. Fullorðinn hláturmáfur, Höfn í
Hornafirði, 7. júlí 1975. — Adult Laughing
Gull (Larus atricilla), Höfn í Hornafirði,
SE Iceland, 7 July 1975. (Ljósm Jphoto
Páll H. Benediktsson).
leitir. Með aldrinum lýsast fuglarnir og
á þriðja vetri eru þeir komnir í fullorð-
insbúning. Fullorðnir fuglar að sumri
eru hvítir að neðanverðu með dökk-
grátt bak og vængi, nokkru dekkri en á
stormmáfi. Ystu handflugfjaðrirnar
eru svartar og afturjaðar vængja er
hvítur. Höfuð er svart og hvítir baugar
eru ofan og neðan augna. Fætur og nef
eru dökkrauð að lit. Á vetruna eru
fætur og nef dökkleit, og hettan hverf-
ur að mestu leyti, en þó eru oftast
dökkir flekkir aftan augna og á
hnakka.
Sléttumáfur (Larus pipixcan)
Sléttumáfur er amerísk tegund, sem
verpur á sléttum í vestanverðri N-Am-
eríku. Vetrarstöðvar hans eru við
Kyrrahafsströnd Mið- og S-Ameríku
frá Guatemala til Chfle. Farleið sléttu-
máfa liggur um vesturhluta Bandaríkj-
anna milli Klettafjalla og Mississippi-
dals.
Sléttumáfar verpa í byggðum í vot-
lendi, eins og margir aðrir máfar, og
leita fæðu í graslendi og ökrum. Þeir
lifa að mestu á skordýrum yfir sumar-
tímann.
Sléttumáfar eru sjaldséðir á aust-
urströnd Bandaríkjanna. Þeir eiga það
þó til að flækjast austur yfir Atlantshaf
og hafa sést yfir 20 sinnum í nokkrum
löndum V-Evrópu. Hér á landi hefur
sléttumáfur sést einu sinni:
1. Höfn í Hornafiröi, A-Skaft, 21,—26. sept-
ember 1984 (ad). (3. mynd). Gunnlaugur
Pétursson & Erling Ólafsson (1986).
Fullorðnum sléttumáfum verður
tæpast ruglað saman við aðrar máfa-
tegundir í Evrópu, nema helst hlátur-
máfa. Sléttumáfar eru heldur minni en
hettumáfar. Ungfuglar á fyrsta hausti
eru gráir á baki með dökkar handflug-
fjaðrir, fremur breitt dökkt stélbelti og
sérkennilega dökka hettu á hlustar-
þökum, hnakka og aftanverðum kolli.
Nef er svart og fætur svartir eða
rauðbrúnir. Fuglar á fyrsta sumri eru
svipaðir, nema hvað þeir eru jafn-
grárri á baki og vængjum, dökka svæð-
ið á vængendum afmarkaðra og stél
oftast án beltis. Sömu sögu er að segja
um fugla á öðrum vetri: dökkir væng-
endar eru nú enn betur afmarkaðir frá
dökkgráu baki og stél er gráleitt, án
beltis. Hetta fugla á öðru ári er svipuð
og á fyrsta árs fuglum nema dekkri. í
fullorðinsbúningi, sem þeir fá á öðru
sumri, eru þeir með svarta hettu, en
hvítir baugar eru ofan og neðan
augna. Bak er dökkgrátt, vængendar
hvítir með stórum svörtum flekkjum.
Nef er rautt, oft með óljósum dökkum
hring. Fætur eru rauðir. Fullorðnir
fuglar missa hettuna að mestu á vet-
urna.
60