Náttúrufræðingurinn - 1958, Side 11
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
65
4. mynd. Rekaviður í malarkambinum í Tömmerbukta.
Ljósm.: Steindór Steindórsson.
manna á stríðsárunum, og þar er nú ágætt skipbrotsmannaskýli.
Til þess að komast að vatnsbólinu, liefur verið lagður vírstrengur
upp eísta klettabeltið í höfðanum. Framan við Rostunginn, en
laus frá honum, rís upp drangur mikill, Brielleturn, sést hann og
Rostungurinn langt að, og eru eitt bezta kennileitið á allri norð-
urströndinni.
Upp af Rostungsvíkinni nær miðri er lítilsháttar undirlendi og
stutt dalskora þar upp af. í miðjum dalnum er dálítill hóll og
stendur trékross allmikill efst á honum. Á þverslá krossins er letr-
að „Hollenderhaugen, her hviler tappre hollandske menn“, en á
langstofni krossins er: „Reist 18. 8. 1931 av fiskerikonsulent Thor
Iversen, Norge“. Þarna eru legstaðir Hollendinga þeirra, er fyrstir
manna höfðu vetursetu á Jan Mayen, og síðar segir nánar frá. Utan