Náttúrufræðingurinn - 1958, Blaðsíða 9
NÁTTÚRUFRÆÐINGU RINN
63
3. mynd. Hoyberget, eldgígur syðst á eynni.
— Ljósm.: Steindór Steindórsson.
ast nokkur flái upp undir háeyna, en efst er háslétta með einstök-
um hnjúkum og tindum. Hygg ég að jarðlögum halli öllum til
norðurstrandar. Flestir tindanna eru milli 500 og 700 m háir. Er
Franz Josefstindur hæstur þeirra, 729 m. Margt er þarna um eld-
gíga, og hafa hraun fallið frá þeim sem fyrr segir. Mesta hraunið
er Lavastraumen, milli Hollendingavíkur og Viðarvikur.
Allmargar víkur skerast inn í norðurströnd Suðureyjar. Næst
Kraterflya er Guineavík. Er hún umkringd brotnum hraunhömr-
um 20—30 m háum, og virtust þeir hvarvetna ókleifir, fyrr en
komið er á tangann austan við víkina. í björgum þessum koma
fram 4 eða 5 hraunlög með millilögum úr gjalli og lausum gos-
efnum. Er bergið allt mjög laust og frauðkennt, og hrynur úr því
í sífellu.
Næstu víkur þar fyrir austan er Tjaldavík (Titeltbukta) og Hol-
lendingavík (Sju Hollenderbukta). Báðum megin að hinni síðar-
nefndu falla hraunstraumar, en sjálf er víkin umkringd fjallsbrík,