Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1958, Side 58

Náttúrufræðingurinn - 1958, Side 58
112 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN þessum erlendu snjóflóðum, hefði mátt gera það í mun styttra máli. Hvern fjandann, liggur mér við að segja, varðar okkur um nöfn, aldur og atvinnu fólks, sem farizt liefur í snjóflóðum suður í Alpafjöllum? Hefði ekki verið nóg að nefna tölu þeirra er fórust hverju sinni? Síðari og meiri hluti annars bindis er snjóflóðaannáll. Ég hef ekki kynnt mér það efni jafnmikið og frásagnir af framhlaupum og kann því lítt um að dæma, en auðsæilega er þarna mikill fróðleikur samandreginn. Þótt mér þætti höf. of langorður á köflum, það er yfirleitt hans "höfuðsynd, las ég þennan hluta bindisins mér til mikils fróðleiks og allmikillar ánægju. Einkum eru áhrifamiklar frásagnir af þeim ægilegu snjóflóðum á Seyðisfirði 1885 og í Hnífsdal 1910. í þennan kafla vantar bagalega kort. Ritverkinu fylgir nafna- skrá, svo sem vera ber, og heimildaskrá. Nafnaskráin virðist mér vandlega unnin, en lieimildaskránni og heimildatilvitnunum er nokkuð ábótavant, ef lagður er á þetta sá mælikvarði, sem leggja verður á rit sem vera á vísinda- legs eðlis. Hér að framan hefur verið á ýmislegt drepið og þó fremur dregið fram það, sem aðfinnsluvert er, svo sem verða vill í ritdómum. En þótt ég sé nú, eftir annan lestur þessa mikla ritverks, ekki eins hástemmdur um gildi þess og ég var eftir fyrsta liraðlestur, er ég enn þeirrar skoðunar, að hér sé um merkilegt rit að ræða. Óneitanlega er það mikið eljuverk, verk sem enginn vinnur, nema hann hafi bæði brennandi áhuga og mikla starfsorku. Viðfangsefnið er hið merkilegasta, bæði frá landfræðilegu sjónarmiði og vegna þess, hverja þýð- ingu þau fyrirbæri, sem þar er um að ræða, hafa fyrir land og þjóð. Vissulega eru ýmsir gallar á ritverkinu, svo sem á hefur verið drepið, og auðsætt, enda eðlilegt, að allmikið skorti á vísindalega skólun höfundar og þjálfun í vísinda- legum vinnubrögðum. Hann kann m. a. alls ekki þá mjög svo þýðingarmiklu kúnst að takmarka sig — en „in der Beschránkung zeigt sich erst der Meister", — og hann er ekki nógu gagnrýnn á heimildir. En allt um það er stórmikill feng- ur í þessu ritverki. Ef Ólafur Jónsson heldur áfram á þeirri braut, sem liann hefur fetað síðustu áratugina — og hann virðist hafa ódrepandi vinnuvilja og starfsþrek — myndi ég vilja ráða honum til að takmarka viðfangsefni sín meira en hingað til, taka til nánari rannsóknar eitt þeirra mörgu viðfangsefna, sem hann áður hefur fjallað um, t. d. framhlaupin, og hafa þá meiri samráð en hingað til við „akademíska" náttúrufræðinga. Ég trúi ekki öðru en að hann megi vænta skilnings þeirra og velvildar í starfi sínu, því þeir hafa ástæðu til að vera þakklátir hverjum þeim, sem af alhug vill leggja eitthvað af mörkum til rannsóknar á náttúru þessa lands. Ólafur Jónsson hefur þegar lagt mikið af mörkum. Þökk sé honum fyrir það og megi hann áfram halda og enn betur gera. Sigurður Þórarinsson.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.