Náttúrufræðingurinn - 1958, Blaðsíða 54
J08
NÁTT Ú R U FRÆÐINGURINN
því ólíklegt er, að jökull sitji eftir í dal svo sem þar er teiknað. Höf. sleppir og
í skýringum sínum þýðingarmiklu atriði í því, sem teikningar mínar áttu að
sýna, sem sé því, hvers vegna það er venjulega aðeins önnur lilíð blágrýtisdal-
anna, sem Jileypur fram.
Kaflann Forn framhlaup á íslandi las ég með einna mestri eftirvænlingu,
þvi framhlaup forn liafa verið mér liugstætt rannsóknarefni síðan sumarið
1936, er ég og Svíinn C. Mannerfelt veltum vöngum yfir einu slíku fram-
3. mynd. Framhlaup í Kollafirði í Strandasýslu.
Ljósm.: S. I>. sept. 1949.
Jdaupi í Hoffellsdal í Hornafirði og liugðum við í fyrstu vera jökulbotn með
jökulgörðum fyrir framan. Ég varð þó fyrir nokkrum vonbrigðum yfir þessuin
kafla hjá Ólafi, fann þar fá framhlaup nefnd, sem ég vissi ekki einhver deili
á áður, þótt Ólafur hafi vissulega kannað mörg þeirra ítarlegar en ég, og all-
margra saknaði ég, sem mér var kunnugt um, enda tekur liöf. það fram, að
lionum hafi ekki gefizt tækifæri til að kanna sum þau svæði, sem hann vildi
kannað hafa. Mér þykir það og alvarlegur skortur á forvitni höf., að hann
skuli ekki hafa lært að þekkja hvert frá öðru ljósu öskulögin fjögur í jarðvegs-
sniðum norðanlands, svo haganleg sem þau þó eru til ákvörðunar aldurs á