Náttúrufræðingurinn - 1958, Qupperneq 12
66
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
í hólnum eru 9—10 grjótþústir, sem sennilega eru gömul leiði. í
einni þeirra sást á kistufjöl. Enn eru tvær þústir landmegin í hóln-
um, sem gætu verið leiði, en eru annars mjög mosagrónar. Ofan
við Rostungsvíkina er örþunn fjallsbrík, sem að lögun minnir mjög
á gígbarm, en þar fyrir ofan tekur við flatneskja yfir að brúnum,
ofan syðsta hluta Rekavíkur. Standa einstakir hnjúkar upp af
henni, en sunnar tekur við fjalllendi Suðureyjar, sem er hnjúkótt
og eldbrunnið. Ofannefnd flatneskja er vaxin tiltölulega sam-
felldri mosaþembu, en undirlag hennar virtist mér vera jökulsorf-
ið grágrýtishraun. Ekki skal það þó fullyrt, sakir þess, að enn var
víðast svo frosið, að erfitt var að ná mosanum af.
Við Rostunginn má kalla að Suðurey Ijúki. Austur af honum
hefst Maríuvík. Næst Rostungnum er löng sandströnd, Haugen-
stranda, sem mjög minnir á sandana í Rekavík. Frá Haugenstranda
gengur grunnur dalur á ská suðvestur yfir eyna, að norðurenda
Suðurlóns, norðan undir Hannfjalli. Þar virtist mér greiðfærast
yfir eyna, því að varla var um nokkurn verulegan bakka að ræða
hvorugu megin. Frá Haugenstranda eru strandbjörg með mjórri
fjöru undir allt norður að Austurríki og Kirkjufelli, sem fyrr er getið.
Jarðmyndanir.
Jan Mayen er að öllu leyti mynduð af eldgosum. í raun réttri
má segja, að eyjan sé öll samfelldar eldstöðvar, þótt nokkurt bil
sé á milli gíganna. Eins og fyrr getur, er eldfjallið Bjarnarfjall all-
ur norðurhluti eyjarinnar. Auk toppgígsins eru nokkrir hliðar-
gígar í fjallinu, að minnsta kosti að sunnanverðu, og hefur hraun
runnið frá þeim. Jarðfræðingar telja Bjarnarfjall eitt af fyrirferð-
armestu strýtu eldfjöllum jarðarinnar, bæði að hæð og ummáli.
Talið er að efri hluti keilunnar sé úr basalti, en grunnurinn úr
móbergi, sem er grátt og grófgert neðantil, en ljósara að ofan.
Kemur móbergsmyndun þessi fram samfelld um alla suðurströnd
Norðureyjar, og er um þrjú hundruð metra þykk. Enginn vafi
leikur á því, að Bjarnarfjall er ungt eldfjall. Hins vegar hefur það
ekki látið á sér bæra síðan eyjan fannst fyrst. Sennilega er langt
síðan gos hafa komið úr toppgígnum, en hraunið, sem fyrr getur,
að runnið hafi niður í Rekavík, er unglegt. Einkum benda breyt-
ingarnar á strandlengjunni til þess, að þar sé um nýsmíði að
ræða. Það hraun hefur runnið frá gíg í suðurhlíð fjallsins.