Náttúrufræðingurinn - 1958, Side 21
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
75
þá verður eri'itt um gróðurrannsóknir svo snemma á gróðrarskeið-
inu. Þá ollu og tengsli mín við skipið því, að ekki var unnt að skoða
önnur svæði en þau, sem næst lágu víkum þeim, sem viður var
tekinn í, en það var aðallega á Mið- og Suðurey, norðan frá veður-
stöð Norðmanna og suður í Guineavík. Þá hafði snjó ekki enn
leyst af fjalllendinu á Suðurey, og víða var snjór svo nýleystur, að
ekki var gróðurs að vænta í skaflastæðum, en einmitt má búast
við ýmsu merkilegu í snjódældum. Sakir snjóanna fór ég minna
til fjalla en ella mundi.
Flóra Jan Mayen er harla fáskrúðug. í ritum þeim, sem ég hef
handbær, er getið 42 tegunda háplantna. Eina tegund, holurt (Silene
acaulis), fann ég þar, sem ekki er getið þaðan áður. Lynge (1939)
segir um 60 tegundir fundnar þar, og mun hann vitna til safna
Lids. Eins og sjá má af meðfylgjandi flórulista fann ég rúmlega
30 tegundir háplantna í minni ferð. Af mosum eru kunnar 119
tegundir, af fléttum 144 tegundir, sveppum 10 tegundir, sæþörung-
um 18 tegundir, og kísilþörungum í ósöltu vatni 113 tegundir. F.kki
verður rætt hér um annað en háplönturnar.
Þegar vér lítum á æðri gróður eyjarinnar, vekur það ekki megin
athygli vora, liversu fáar tegundirnar eru, heldur miklu fremur hitt,
hversu strjáll gróðurinn er. Tegundafæðin er auðskilin. Eyjan er
einangruð úti í reginhafi, og engar líkur benda til þess, að hún
hafi nokkru sinni verið í tengslum við önnur lönd. Eins og getið
hefur verið, er jarðmyndun hennar öll ung. Sennilega hefur öll eyjan
orðið til á kvartertíma, og mestar líkur benda til, að hún hafi verið
hulin jöklum á Jökultímanum. Eitt er víst að minnsta kosti: All-
ur gróður hefur hlotið að berast þangað yfir mörg hundruð mílna
haf á tiltölulega skömmum tíma, eða með öðrum orðum eftir að
ísöldinni létti. Ekki er kunnugt um, að þar séu til einlendar teg-
undir eða afbrigði æðri plantna, þótt ekki verði það fullyrt. Lynge,
sem þaulkannað hefur fléttugróður eyjarinnar, segir enga fléttu-
tegund hennar bera merki þess, að hún sé leifagróður, en 7 fléttu-
tegunda getur hann þaðan, sem að minnsta kosti þá var ókunnugt
um, að yxu annars staðar.
Af þeim 43 tegundum háplantna, sem mér er kunnugt um á Jan
Mayen,1) vanta 3 á íslandi,Draba fladnizensis, D. liirta var. trichella
1) Flórulistar Gandrups, Kruuses og Ostenfelds, sbr. heimildaskrá.