Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1958, Qupperneq 27

Náttúrufræðingurinn - 1958, Qupperneq 27
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 81 Snækraekill (Sagina intermedia) ..... Snænarvagras (Phippsia algida)....... Holurt (Silene maritima) ............ Þúfusteinbrjótur (Saxifraga ceespitosa) Lambagras (Silene acaulis)........... Grasvíðir (Salix herbacea)........... Túnvingull (Festuca rubra) .......... Blávingull (F. vivipara) ............ 1 2 3 4 5 6 7 x x X X X X X X X c. Hraun. Naumast er hægt að segja, að hraunin á Jan Mayen séu sjálfstæð gróðurlendi. Mestur hluti þeirra, að minnsta kosti á Suðurey, er vaxinn mosaþembu, en snjódældir eru víða um þau, og verður því hvorttveggja lýst síðar. Hraunið í Rekavík er svo sand- orpið, að gróður þess er hinn sami og sandanna. Hér verður því einungis lýst sérkennilegum hraunfláka í vestanverðri Tömmer- bukta. Hraunið hefur fallið niður á sléttlendi í víkinni og breitt þar úr sér um allstórt svæði. Að framan rís það með brotnum bakka 8. mynd. Beltaskipting gróðurs í Tömmerbukta. upp af sandfjöru (8. mynd 1—2). Fremsti hluti hraunsins er sand- orpinn, en þó eigi meira en svo, að hraunstrýtur standa hvarvetna upp úr sandinum (8. mynd 3). Þar fyrir ofan tekur við sléttur flati, sem fyllst hefur af sandi og rennsli ofan úr brekkunum, svo að hraunið er nú hulið, en sums staðar hafa björg hrunið ofan úr brekkunum. Flati þessi er gróinn að sjá tilsýndar. Gamburmosinn (Rhacomitrium) þekur miklu mest, en þó er mosabreiðan fremur J)unn. Næst fjallinu (8 mynd 5) eru svo miklar breiður af vetrar- blómi, að víða slær rauðum blæ á landið innan um gráar mosa- breiðurnar (9. mynd), en nær ströndinni (8. mynd 4) er mosinn ósamfelldari og gráskófin mjög áberandi (10. mynd). Aðrar há- plöntur er þarna uxu voru: Ólafssúra, músareyra, jöklasóley, gras-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.