Náttúrufræðingurinn - 1934, Page 22
68
NÁTTÚRUPR.
nóttina. Um kl. 3 f. m. sá eg áköf leiftur lítið vestar en í há-
suðri. Virtust það eingöngu eldingar. Þá sá eg ógreinilega fyr-
ir mekkinum nema helzt austurhlið hans, því þar sló á hann
mjög daufum roða. Margar eldingarnar virtust verá inni í
mekkinum. Þ. 2. apríl sást mökkurinn mjög vel og var þá
hár (þó ekki nema % af því, sem hann varð hæstur 1923) ;
askan virtist berast í vestur frá gosinu. Hélzt mökkurinn breyt-
Gosmökkurinn (hæð og breidd) samanborið við stærð Trölladyngju (hlut-
föllin nákvæmlega mæld). Mælingin gerð í 300 m. hæð yfir sjó, P/2 kílóm. í
vestur frá;jGrímsstöðum við Mývatn af T. S. (Ekki er tekið fram hvenær
mælingin er gerð).
ingalaus þann dag. Maður, sem athugaði mökkinn í góðum
sjónauka, sagði mér að fyrst um morguninn hefði mökkurinn
klofnað neðst í tvo mekki, en runnið saman þegar ofar dró.
Allan þann dag sáust að minnsta kosti tveir lágir gufumekkir,
sem báru austan við aðal-gosmökkinn (eins og sjá má á vatns-
litamynd, sem ég læt fylgja með). Annars var svo mikil vatns-
gufa niður við jökulinn allan tímann sem gosið sást, að ekki
var hægt að sjá mökkinn niður að jökli. Aðfaranótt 3. apríl