Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1934, Side 26

Náttúrufræðingurinn - 1934, Side 26
72 NÁTTÚRUFR. Dalbarmurinn að sunnan og vestan mældist mér í 1650 rm hæð yfir núverandi haffleti (System Paulin). Á botni dalsins lá jökullag’. En þar sem stærri gígurinn var, stóðu veggir hans á þrjá vegu þverhnýptir niður að vatn- inu 30—40 m. háir, en að sunnan gengu jökul- og móbergs- veggir sigdalsins sjálfs, 200—300 m. háir, lóðréttir að gígnum fram. Menn vita að það er samband á milli gosa í Vatnajökli og hlaupa í jökulsánum, sem koma frá honum. En hingað til hafa menn ekki þekkt á hvern hátt þessu sambandi væri farið í öllum atriðum. í stórum dráttum virðist það vera þannig: Milli gosa fyllist dalurinn að mestu af jökli og snjó, sumpart á þann hátt, að jökullinn skríður niður af börmunum og sumpart af snjófoki. Þegar eldar losna þarna, bráðnar jökullinn úr daln- um að meira eða minna leyti og vatnsflaumurinn fær framrás neðanjökuls, eftir sprungum og göngum. Allt virtist benda á, að framrásin skeði úr suð-austurhorni sigdalsins. Mig langaði niður Skeiðarárjökul og að fylgja sjálfu hlaupinu, en þess var enginn kostur. III. Gosefnin. Ekkert hraun virtist hafa runnið við gosið. Gosgufur gat eg því miður ekki athugað til hlítar. I fyrra. sinnið, sem eg kom til eldstöðvanna, voru þær byrgðar þykkum gosmekki, en allmikið af þeirri gufu var vatnsgufa, sem mynd- aðist við, að heit laus gosefni ( vikur og aska) bræddu jökul- inn umhverfis. I síðara skiftið, sem eg dvaldi við gosstaðinn rauk enn ákaft upp úr stærri gígnum. Laus gosefni umhverfis eldstöðvarnar voru aðallega þrenns- konar. — 1. Brot úr bergtegundum, er munu hafa sprengst úr und- irstöðubergi jökulsins og kastast upp á yfirborðið. Fundust þannig líparítmolar, allt að því höfuðstórir, dulkornóttir blá- grýtismolar (allt að hnefastærð) og móbergsmolar, bæði smá- gjört (tuff) og þursaberg (breccia). 2. Vikur, er lá í dyngjum á suðvesturbarmi sigdalsins. Svartur og dökkrauður að lit. Á leið okkar vestan jökulinn fundum við vikurmola í ca. 10 km. fjarlægð frá gosstaðnum- 3. Eldfjallaaska. Töluverðs öskufalls varð vart, einkum.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.