Náttúrufræðingurinn - 1942, Side 76
120
XÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
TAFLA I.
Gullákvarðanir í 3% upplausn af matarsalti.
Til- raun nr. Gull látið á hverja flösku g. 10« Gull fundið í sömu ílösku g. 10» Skekkja °/o Til- raun nr. Gull látið á hveija llösku g. 10« Gull fundð í sömu flösku g. 10» Skekkja 0/ /o
i 2,2430 2,3040 + 2,72 9 0,9430 0,9520 + 0,96
2 1,8215 1,8100 -=- 0,63 10 0,5435 0,5160 5,06
3 1,6260 1,5574 — 4,22 11 0,3640 0,3740 + 2,75
4 1,4460 1,4593 + 0,92 12 0,1360 0,1355 4- 0,37
5 1,4215 1,4365 + 1,06 13 0,0984 0,1007 + 2,35
6 1,1185 1,0555 5,65 14 0,0434 0,0456 + 5,07
7 1,0480 1,0552 + 0,69 15 0,0136 0,0144 + 5,88
8 0,9870 1,0034 + 1,64
lítið magn hér er um að ræða, mun flestum virðast árangur rann-
sóknanna furðu nákvæmur, enda þótt stundum skakki talsverðu,
ef reiknað er í %.
Eins og getið var hér að framan liöfðu þrír menn, sem allir voru
taldir vel færir i sínum fræðum, þótzt finna allmikið gull, saman-
borið við það sem Þjóðverjarnir fundu, i sjóvatni frá Kaliforníu-
strönd. Kalifornía er, sem kunnugt er, gullnámuland og mátti því
þyltja ekki ólíklegt, að sjórinn þar væri eitthvað gullauðugri en
víðast annarsstaðar. Haber fékk ameriskan efnafræðing, prófessor
við Kaliforníuháskóla, til að annast sýnishornatöku þar og voru,
í jan. og febr. 1925, tekin allmörg sýnishorn i norðanverðu Golden
Gate, þar sem San Francisco-flóinn opnast út til hafs, og einnig
allmörg inni á sjálfum flóanum í nánd við Oaldand. 1 flóann inn-
anverðan fellur Sacramento-áin, en í dal hennar voru námur þær
er orsökuðu „gullsóttina“ frægu, sem um miðja nítjándu öld gerði
fjölda manns i Ameríku hálftrylltan. En hafi einhver óttast, að
sá kvilli tæki sig upp aftur vegna rannsóknanna á vatninu úr San-
Fransisco-flóanum, þá hefur sá hinn sami getað sofið rólegur eftir
að þeim var lokið. Það mesta, sem fannst af gulli í Golden Gate,
var 0,031 mg pr. tonn og meðaltal var 0,010 mg pr. tonn. Við Oak-
land voru tilsvarandi tölur 0,055 mg og 0,015 mg. Svipuð þessu
og þó heldur lægri, reyndust 36 sýnishorn, sem þýzka liafrann-
sóknaskipið Meteor tók á ferð yfir þvert sunnanvert Atlantsliaf,
um 42° suðl. breiddar og á ýmsu dýpi, frá yfirborði og allt niður
í 5400 metra. Meðaltalið reyndist liér 0,008 mg og mest 0,044 mg
pr. tonn.