Náttúrufræðingurinn - 1956, Side 20
14
NÁTTÚRUFRÆÐINGU RINN
unar, þar sem fóstrin voru tiltölulega lítið þroskuð, og helzt var
að vænta, að sæði íyndist í. Af þessum athugunum má álykta, að
frjóvgun eggjanna fari fram í marz.
Athuganir á svilum leiddu í ljós, að þau höfðu algerlega tæmzt af
sæði, er kom frarn í janúar. Þar sem sæðið fannst aðeins í gotunni
á þessum tíma, hlýtur það að vera geymt þar, þangað til frjóvgun
eggjanna fer fram. Þegar í október fannst mikið sæði í allmörgum
gotum. Hjá þessum fiskum hefur því eðlun farið fram strax í
október. Af fxamansögðu má draga þá ályktun, að eðlun karfans
fari fram á tímabilinu október til janúar.
Reynt var ennfremur að ákveða frjóvgunartíma eggjanna á þann
hátt að finna fyrstu skiptingar eggsins, þ. e. fyrstu stig fóstur-
myndunarinnar. Þetta tókst ekki svo vel sem skyldi, því að eggin
eru mjög ógagnsæ, unz fóstrið er orðið allstórt. Kímskífur fundust
ekki fyrr en í marz, og ekki að ráði fyrr en í seinni hluta mánaðar-
ins. Styður þetta þá ályktun, að aðalfrjóvgunartíminn sé í marz.
Það bendir einnig í sömu átt, hversu sæðismagn í gotum fer hratt
D=Ekkert
fflH 3 L í t i é
í meSal lagi
MI k i á
9. mynd. Fundur sæðis í gotum árið 1954 (des. 1953). Lárétt: mánuðir, lóð-
rétt: fjöldi fiska í hundraðshlutum (%). Yfir súlunum er fjöldi rannsakaðra
fiska gefinn til kynna. Svart: mikið, tvístrikað: ntiðlungi mikið, einstrikað:
lítið og hvítt: ekkert sæði í gotu.