Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1967, Page 21

Náttúrufræðingurinn - 1967, Page 21
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 113 hefur tekizt að brúa sum bilin og auka skilninginn á lífsmyndun- inni eins og við skynjum hana í dag. A sautjándu öld hafði Descartes getið sér þess til, að eðlilegar efnafræðilegar skýringar lægju að baki sjálfkviknun lífs. Sá skiln- ingur átti erfitt uppdráttar eftir tilraunir Pasteurs, sem sönnuðu, að líf gat aðeins skapazt af líli, og reyndar virtust öll lífræn efni sköpuð af lífverum. Ólífrænt efni virtist ekki geta orðið lífrænt nema fyrir áhrif lífvera. Einnig virtist reginmunur á lifandi veru og ólífrænu efni, til dæmis á tré og kletti, manni og steini. Hins vegar voru til svo frumstæðar lífverur, að bilið milli kviks og ókviks virtist í því tilfelli ekki svo ýkjamikið. Það var vissulega erfiðleikum bundið að skilgreina líf frá dauðu. Höfuðeinkenni líf- vera eru til dæmis þau, að lífverur vaxa og nærast, en kristallar vaxa einnig, og það má segja að eldur nærist. Tímgun er enn einn eiginleiki lifandi vera, en vera er að vísu lifandi þótt hún tímgist ekki. Þegar Wendell Stanley tókst fyrir 30 árum að kristalla veirur, sást enn betur, hve erfitt var að skilgreina milli lifandi og ólífrænna efna. Sú skoðun hefur því mótazt, að lífrænt og ólífrænt efni séu raunverulega tvær hliðar á sama fyrirbrigðinu, efninu, sem við til hægðarauka skilgreinum á þessa tvo vegu. Það lá nú nokkuð ljóst fyrir, að lífverurnar höfðu þróazt frá hinum smæstu og einföldustu í hinar stærstu og flóknustu. Hvað var jxí sennilegra en að hinar einföldu lífverur hefðu upprunalega þróazt úr dauðu efni eða hefðu orðið flókið form einfaldra efna- sambanda? Þarna hafði sjálfkviknunarkenningin þá raunverulega enn skotið upp kollinum, þótt væri hún nú í nokkuð breyttri mynd. Eitt fyrsta skref til sönnunar á sambandi hins lífræna og ólífræna var stigið árið 1828, þegar þýzka efnafræðingnum Wöhler tókst að framleiða „urea“, þvagefni CO(NH2)2, í rannsókharstofu sinni. Með því hafði honum tekizt að búa til lífrænt efni úr ólífrænu, senr áður hafði verið talið óhugsandi að gæti myndazt, nema það hefði verið framleitt í líkama lifandi veru. Þessi athugun varð undanfari svipaðra uppgötvana á myndun einfaldra lífrænna sanr- banda úr ólífrærium. Þannig tókst A. W. H. Kolbe að framleiða edikssýru úr frumefnum árið 1845 og ellefu árunr seimra tókst að framleiða metan úr einföldum efnasamböndum. Þrátt l'yrir það

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.