Náttúrufræðingurinn - 1967, Blaðsíða 45
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
137
aldursákvörðuðu sýnishorn úr efstu 4—5 cm lagsins (að meðaltali
um 8120 ára), og áætlaði aldur þess „mjög nálægt 8 þúsundum ára“.
Hin nýja aldursákvörðun þessa sama mólags var gerð fyrst og
fremst í því skyni að reyna að tímasetja upphaf jarðvegsmyndunar
ef'tir að Suðurlandsundirlendið reis úr sæ, og þess vegna voru sýnis-
hornin, tvö að tölu, tekin af neðraborði mólagsins og aðeins 2—3
cm upp í það.
Útkoman má heita ein og hin sama af báðum ákvörðununum,
mismunur aðeins 20 ár. Samkvæmt meðaltalinu, sem er 8200 ár,
ætti myndun alls mólagsins að hafa tekið tæpa öld. En vegna upp
gefinnar eðlilegrar ákvörðunarskekkju kann hún þó vel að hafa
tekið fáeinar aldir, og er það líklegra um þetta þykkt lag af fast
þjöppuðum mó.
Nú er ástæða til að hækka lítillega fyrri áætlun mína um aldur
Jjjórsárhrauns, vegna þess að mómyndunin hefur verið hraðari en
mig varði og væntanlega enginn verulegur aldursmunur á hraun-
inu og efstu sentímetrum mólagsins. Sennilegastan aldur hvors
tveggja tel ég nú um 8100 ár (ef miðað er við hinn styttri helm-
ingatíma C14, og 3% hærri, þ. e. um 8350 ár að miða við lengri
helmingatímann).
Allvíða með jöðrum Þjórsárhrauns, bæði við Þjórsá og Ytri-
Rangá, sér á undirlag þess. Það er nær alls staðar skálögóttur mel-
ur, áreyri að uppruna. Hvergi nema þarna, hjá Þjórsárbrú, hefur
fundizt vottur af gróðurleifum á mótunum. Þetta bendir vissulega
til, að mórinn hjá Þjórsárbrú sé leilar af einhverjum hinna allra
fyrstu mýrarbletta, sem til urðu á Suðurlandsundirlendi, eftir að
það reis úr sjó. Samkvæmt hinni nýju aldursákvörðun hófst þarna
mómyndun fyrir um 8200 árum (eða — samkv. hærri helmingatöl-
unni — um 8450 árum).
Aðeins á tveimur stöðum hér á landi hafa verið aldursákvarðaðar
eldri jarðvegsleifar. íslandsmet í þessari grein hefur örþunnt mold-
arlag með koluðum gamburmosa undir Þingvallahrauni. Hann
reyndist 9130 ± 260 ára (W — 1912), þ. e. um þúsund árum eldri
en mórinn hjá Þjórsárbrú. Sá aldursmunur er eðlilegur að því
leyti, að eldri leilarnar liggja ofan, en hinar yngri neðan hinna
efstu sjávarmarka í ísaldarlok. — Hitt kemur meir á óvart, að fjöru-
mór í Seltjörn á Seltjarnarnesi er einnig samkv. C14-aldursákvörð-
unum fullra 9 þús. ára. En þá er þess að gæta, að ísaldarjökulinn